Innlent

Slæmar afleiðingar fyrir sauðfé

Bjarki Ármannsson skrifar
Dýralæknir segir varnarlínur geta stemmt stigu við því að smitsjúkdómar dreifist.
Dýralæknir segir varnarlínur geta stemmt stigu við því að smitsjúkdómar dreifist. fréttablaðið/Vilhelm
Niðurlagning sauðfjárveikivarnarlína var meðal þess sem rætt var á sveitarstjórnarfundi í Mýrdalshreppi í síðustu viku. Einar Þorsteinsson, fyrrverandi ráðunautur og íbúi á svæðinu, vakti athygli fundarmanna á því að niðurlagning varnarlína hefði þegar haft slæmar afleiðingar fyrir dýraheilbrigði.

„Ég hef haft veður af þessu undanfarin ár,“ segir Sigurður Sigurðarson dýralæknir. Hann segir það erfitt að stöðva útbreiðslu sjúkdóma á borð við lungnapest, kregðu og garnaveiki í sauðfé ef varnarlínur eru lagðar niður.

„Þá geta menn farið að versla,“ segir Sigurður. „Ein aðalhættan við það er að sjúkdómar geta breiðst út milli landshluta.“

Varnarlína milli Eyjafjalla og Mýrdals er meðal þeirra sem lagðar hafa verið niður undanfarin ár. Sigurður segist hafa verið mótfallinn þeirri ákvörðun á sínum tíma.

„Mín afstaða hefur verið sú að það sé ekki sniðugt að versla með sauðfé á meðan sjúkdómar eru mismunandi eftir svæðum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×