Innlent

Íslensk kona í Lærdal segir mildi að eldurinn kviknaði ekki að næturlagi

María Lilja Þrastardóttir skrifar
Tuttugu og þrjár byggingar, þar af sextán íbúðarhús brunnu til grunna um helgina í Lærdal í Noregi. Talið er að tjónið nemi að minnsta kosti hundrað milljónum norskra króna, eða um tveimur milljörðum íslenskra króna.

Íslensk kona sem búsett er í bænum segir mildi að eldurinn hafi ekki kviknað eftir að bæjarbúar lögðust til hvílu, slíkt hefði haft hræðilegar afleiðingar.

Níutíu manns þurftu að leita aðhlynningar á sjúkrahúsi vegna reykeitrunar. Þá þykir mildi að enginn hafi slasast alvarlega. Að minnsta kosti sextán fjölskyldur í bænum misst allar eigur sínar en Norðmenn hafa verið snöggir til að rétta hjálparhönd og hefur öllum fjölskyldunum verið úthlutaður bráðabyrgða samastaður.

Ekki er enn ljóst hvað það var sem olli eldsvoðanum sem átti upptök sín í litlu timburhúsi og breyddist afar hratt í nærliggjandi hús sem einnig voru úr timbri. Norska öryggislögreglan hefur verið fengin til aðstoðar á rannsókninni og er öflug vakt á svæðinu. Talin er þónokkur hætta á að eldurinn blossi upp að nýju.

Bruninn í Lærdal er sá allra stæsti í landinu í 45 ár eða frá því 1969 þegar stórbruni varð í Tromsø.

Rafmagnslaust hefur verið á svæðinu en samkvæmt upplýsingum fréttastofu er kominn straumur á nokkur hús í bænum það er þó af skornum skammti.

Sigurbjörg Gunnarsdóttir er búsett í Lærdal. Hún var í bíl á leið sinni aftur heim þegar fréttastofa náði af henni tali.

Viðtalið við Sigurbjörgu má heyra í meðfylgjandi myndskeiði úr kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×