Segja Hönnu Birnu sverta mannorð sitt Jakob Bjarnar skrifar 20. janúar 2014 14:43 Hanna Birna kýs að svara ekki hinum alvarlegu ásökunum Jóns Bjarka.
Jón Bjarki Magnússon, blaðamaður á DV, fullyrðir að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra standi í því að dreifa um sig, og félaga sinn á DV, Jóhann Pál Jóhannsson, óhróðri. „[Hún]gefur jafnvel í skyn við fólk að við eigum við geðræn vandamál að stríða. Mér finnst óhugnanlegt að fólk í valdastöðum hegði sér svona og velti því fyrir mér hvort ráðherrann hafi enga sómatilfinningu?“ Þetta segir í yfirlýsingu sem Jón Bjarki hefur sent út á Facebook og hefur farið víða þar. Jón Bjarki segist reyndar hafa heyrt af tilraunum hennar til að sverta mannorð þeirra félaga „til að vega að trúverðugleika okkar í þeim tilgangi að stöðva fréttaflutning DV um trúnaðarbrest innanríkisráðuneytisins gagnvart hælisleitendum. Nú þegar ég heyri úr öðrum áttum að þessi óhróður ráðherrans er komin á kreik víðar get ég ekki orða bundist. Að ráðherra á Íslandi beiti valdi sínu til þess að fara í óhróðursherferð gagnvart blaðamönnum í þeim tilgangi að koma í veg fyrir óþægilega umfjöllun er ekki eðlilegt.“ Vísir greindi frá væringum Reynis Traustasonar og ráðuneytisins fyrir helgi en Reynir var í viðtali í Harmageddon í morgun vegna málsins. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Vísis til að ná sambandi við Hönnu Birnu og/eða aðstoðarmenn hennar tvo; Þórey Vilhjálmsdóttur og Gísla Frey Valdórsson var það án árangurs. Að endingu var haft samband til upplýsingafulltrúa innanríkisráðuneytisins, Jóhannesar Tómassonar, með boð þess efnis hvort ráðherra vildi ekki svara hinum alvarlegu ásökunum? Jóhannes sendi Vísi í kjölfarið skilaboð, svohljóðandi: „Innanríkisráðherra vil ekki svara þessari umfjöllun.“ Uppfært kl. 15:30 Þórey Vilhjálmsdóttir hafði samband nú rétt í þessu, hún hafði ekki haft tök á að svara fyrr í dag og í morgun en vill koma þessari athugasemd að: „Líkt og ég hef áður sagt eru ásakanir og aðdróttanir fulltrúa DV í þessu máli ekki svaraverðar. Það á við um þessi umæli eins og mörg önnur sem blaðið hefur undanfarið viðhaft um ráðherra, innaríkisráðuneytið og starfsfólk þess.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira