Senda friðarákall út í heim með jógaþoni Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 15. ágúst 2014 13:30 Salka Margrét Sigurðardóttir stendur ásamt Pop up Yoga fyrir Jógathoni um helgina í Hljómskálagarðinum. „
Við tökumst á við það neikvæða með hinu jákvæða og þess vegna völdum við jóga. Jóga er alltaf friður og ró,“ segir Salka Margrét Sigurðardóttir, formaður Ungmennaráðs UN Women sem stendur fyrir maraþoni í jóga á laugardaginn í Hljómskálagarðinum, eða svokölluðu jógaþoni. „Ofbeldi er aldrei friður. Við viljum senda þau skilaboð út í samfélagið að ofbeldi gegn konum eigi ekki að líðast.“ Verkefnið er samstarfsverkefni ungmennaráðs UN Women og Pop Up Yoga Reykjavík. Sólarhyllingin, sem einnig er þekkt undir nafninu surya namaskara, var í upphafi eins konar óður til sólarinnar og ávallt gerð við sólarupprás. Nú er hún gjarnan nýtt sem upphitunaræfing í jógatímum og þá hyllir maður sólina sem býr hið innra. Sólarhyllingin er oft sögð fylla fólk góðri orku. Jógaþonið lýsir sér þannig að þátttakendur gera 108 sólarhyllingar og senda þannig í sameiningu friðarákall út í heiminn um afnám ofbeldis gegn konum. Þrír jógakennarar sjá um að leiða hópinn og skipta þeir á milli sín sólarhyllingunum. 108 hefur í gegnum söguna og í hinum ýmsu trúarbrögðum verið talin heilög tala. Þegar gerðar eru 108 sólarhyllingar er það talið til þess fallið að fagna breytingum eða til þess að boða frið, virðingu og skilning. „Byrjendur geta alveg verið með eins og reyndir jógar,“ útskýrir Salka. „Það verður hægt að hvíla sig á milli og þú átt ekki að ofreyna þig.“ Skráning fer fram á unwomen.is og skráningargjald er 2.900 krónur, sem rennur óskipt til verkefna UN Women. Hægt er að skrá sig til 11.30 en viðburðurinn hefst klukkan 12. Mikilvægt er að fólk skrái sig með fyrirvara og undirbúi sig bæði líkamlega og andlega. „Þetta er mikil andleg upplifun. Það myndast svo mikill samtakamáttur þegar margir hugsa það sama.“ Ungmennaráð UN Women var stofnað fyrir aðeins tveimur árum en þegar hefur ráðið haldið vel heppnaða viðburði. „Við viljum vekja athygli á málefnum kvenna og UN Women fyrir ungu fólki. Ungt fólk getur haft áhrif með vitundarvakningu og framlagi sínu til samfélagsins.“
Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Fleiri fréttir „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Sjá meira