Volvo-áhugamenn á áramótarúnt 30. desember 2014 10:00 Ragnar er einn af stofnendum og formaður Volvoklúbbs Íslands. Vísir/Ernir „
Fyrstu kynni mín af Volvo eru þegar ég var lítill krakki og afi átti Volvo-bíl. Þá voru þetta náttúrulega bestu bílarnir,“ segir Ragnar Þór Reynisson, formaður Volvoklúbbs Íslands, glaður í bragði. Á gamlársdag hyggst Volvoklúbburinn halda í áramótarúnt. Lagt verður af stað frá Perlunni, rúntað niður í bæ og endað á bílaplani Ikea. Klúbburinn var stofnaður í fyrra og er Ragnar einn af stofnendum hans. „Markmið klúbbsins er að skapa og stuðla að vettvangi fyrir áhugamenn um Volvo-bíla, hvort sem þeir eru nýir eða gamlir.“ En hátt í 120 manns eru skráðir í klúbbinn. „Þetta tengist minni vinnu þar sem ég sé að það er svona krónísk della hjá mönnum sem hafa átt Volvo-bíla í mörg ár og eru stoltir af sínum bílum og geta sagt endalausar sögur,“ segir Ragnar en klúbburinn hefur meðal annars staðið fyrir vor- og sumarrúnti sem góð þátttaka var í að hans sögn. Ekki er nauðsynlegt að vera skráður félagi til þess að taka þátt í áramótarúntinum, eina skilyrðið er að aka Volvo-bifreið. „Þessi rúntur er ekkert bara fyrir gömlu bílana heldur bara alla. Hann er hugsaður fyrir þá sem hafa áhuga á Volvo-bílum,“ segir Ragnar. Áramótarúntur Volvoklúbbsins hefst klukkan tvö á neðra plani Perlunnar.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira