Heillar hjörtu líkt og faðir hennar Gunnar Leó Pálsson skrifar 23. desember 2014 09:30 Dúettinn átti stórleik í jólaþætti danska ríkisútvarpsins á dögunum. Guðbjörg Tómasdóttir er hægra megin á myndinni. „
Það var óvænt og ánægjulegt að vera beðin um að spila í jólaþætti Danmarks Radio og sérstakt, einnig fyrir þær sakir að þetta voru síðustu tónleikar UnderholningsOrkestret sem hefur starfað í 75 ár en á að leggja niður vegna sparnaðar“ segir Guðbjörg Tómasdóttir, annar meðlimur hins sænsk/íslenska dúetts My Bubba. Dúettinn kom fram á samnorrænum tónleikum Danska ríkisútvarpsins sem voru sýndir í Sjónvarpinu í fyrrakvöld. „Við vorum að spila með Damien Rice þegar við fengum fréttirnar og áttum að stíga á svið í hinu margrómaða Apollo Theatre í New York um kvöldið svo við höfðum ekki mikinn tíma til að hugsa um þetta. Við sögðum bara já,“ bætir Guðbjörg við. Faðir Guðbjargar hefur mikið verið í umræðunni, en það er skurðlæknirinn og hvunndagshetjan Tómas Guðbjartsson, sem bjargaði með ótrúlegum hætti manni sem stunginn var í hjartað fyrir skömmu. Hún segir föður sinn músíkalskan og mikinn tónlistarunnanda. „Það var alltaf mikil tónlist á heimilinu, allt frá poppi og djassi yfir í sex tíma tilfinningaþrungnar Wagneróperur,“ bætir Guðbjörg við. „Ég var mikið með pabba á spítalanum þegar ég var yngri en ég valdi listirnar frekar,“ segir Guðbjörg spurð út í læknaáhugann. Feðginin ætla að dvelja í Ölpunum ásamt fjölskyldunni sinni yfir hátíðarnar en það er nóg fram undan á nýju ári hjá My Bubba. „Við erum að spila á hinni virtu hollensku tónlistarhátíðinni Eurosonic á næsta ári þar sem Ísland verður í forgrunni. Síðan erum við einnig að vinna við gerð nýrra plötu sem við munum taka upp ásamt pródúsentinum Shahzad Ismaily í í New York í byrjun næsta árs.“ My Bubba hefur átt annasamt ár og komið fram á fjölda tónleika víða um heim og meðal annars verið á tónleikaerðalagi með Damien Rice.
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira