12 ára sópran sem elskar Jackson Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar 22. desember 2014 15:30 Benedikt Gylfason Vísir/Valli „
Ég hef sungið frá því að ég man eftir mér,“ segir Benedikt Gylfason, 12 ára sópransöngvari sem vakið hefur mikla athygli. Í fyrra söng hann á Frostrósartónleikum og þann 30. desember næstkomandi syngur hann með stórsöngvurunum Garðari Thor Cortes og Margréti Eiri Hjartardóttur á tvennum jólatónleikum í Grafarvogskirkju. „Mér finnst mjög gaman að syngja, bæði klassíska tónlist og popptónlist,“ segir Benedikt, en í mestu uppáhaldi hjá honum eru þeir Michael Jackson, Páll Óskar, Garðar Thor Cortes og Kolbeinn Ketilsson. Benedikt er vanur að koma fram því auk þess að syngja hefur hann leikið í Dýrunum í Hálsaskógi, sungið í La Bohème og Carmen og fyrir jólin er hann í jólasýningu Skoppu og Skrítlu. En hvort finnst honum nú skemmtilegra að leika eða syngja? „Það er rosalega erfitt að gera upp á milli, mér finnst eiginlega skemmtilegast að blanda þessu bara saman,“ segir hann. Á tónleikunum 30. desember, sem verða kl. 16 og 20, verða sungin þekkt jólalög í hátíðlegum búningi og er Benedikt spenntur að syngja með Garðari. „Við tökum saman lagið Himinganga, en við tókum það líka á Frostrósartónleikunum. Þetta verður bara gaman,“ segir hinn hæfileikaríki Benedikt.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Fleiri fréttir Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Sjá meira