Borðspilin eru listform 22. desember 2014 14:15 Í námi sínu lærði Emba meðal annars að útbúa borðspil, semja og þróa leikreglur, gera grafík fyrir borðspil og tölvuleiki, lærði leikjaheimspeki og listræna leikstjórnun. Vísir/GVA
Ætla mætti að hefðbundin borðspil væru á undanhaldi með tilkomu fullkomnari tölvuleikja, netleikja, spjaldtölva og snjallsíma en það er öðru nær. Mikil gróska er í greininni erlendis og hafa nokkrir ungir Íslendingar meðal annars sótt menntun erlendis í hönnun og gerð borðspila. Einn þeirra er Embla Vigfúsdóttir sem lauk nýlega námi í leikjahönnun borð- og tölvuspila í Danmarks Design Skole í Kaupmannahöfn. Hún segir borðspilin alltaf standa fyrir sínu þrátt fyrir tækniframfarir undanfarinna ára, enda sé allt öðru vísi að sitja einn heima í tölvuleik en að hitta vini sína yfir borðspili. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á borðspilum. Þegar ég var lítil var fjölskyldan með fast spilakvöld einu sinni í viku sem var mikið tilhlökkunarefni. Seinna meir spiluðum við vinirnir mikið í menntaskóla, sérstaklega Catan og Morðingja.“ Embla lærði vöruhönnun í Listaháskóla Íslands og ákvað eftir að hafa unnið í ár að bæta við sig mastersgráðu í Kaupmannahöfn. „Þegar ég var búin að vera í ár í skólanum tók ég eftir því að ég var nánast eingöngu búin að taka kúrsa í spilahönnun svo ég útskrifaðist þaðan. Þar lærði ég meðal annars að útbúa borðspil, semja og þróa leikreglur, gera grafík fyrir borðspil og tölvuleiki, lærði leikjaheimspeki og listræna leikstjórnun.“ Námið býður upp á margs konar möguleika að hennar sögn. „Sumir kjósa að demba sér eingöngu í tölvuleikjabransann, aðrir vinna í leikhúsum eða búa til sviðsmyndir í kvikmyndir. Einnig væri hægt að vinna við að gera smáforrit í síma eða verða listrænn leikstjóri í tölvuleikjum eða kvikmyndum. Sjálf hef ég mest gaman af því að búa til borðspil. Mér finnst gaman að nálgast þennan miðil sem listform, eitthvað snertanlegt sem hópur fólks getur haft gaman af saman.“ Íslendingar hafa löngum verið duglegir að spila borðspil, til dæmis í jóla- og páskafríum og uppi í sumarbústað. „Mér finnst þó svolítið leiðinlegt hvað þessi klassísku spil eins og Monopoly, Lúdó og Party og Co eru enn algeng meðal landsmanna. Fyrir mig er það dálítið eins og að vera enn að hlusta á sömu plötuna með Bítlunum og þekkja ekkert annað. Spurningaspil, partíspil og slönguspil eru ágæt til síns brúks en spil hafa upp á svo margt annað að bjóða.“ Sjálf hefur hún komið að ýmsum spennandi verkefnum undanfarið. Fyrir jólin gefur hún út sitt fyrsta spil sem heitir Hver stal kökunni úr krúsinni? sem er smáspil þar sem hver umferð tekur aðeins nokkrar mínútur en hægt er að spila eins margar umferðir og óskað er. „Spilið er eingöngu hannað fyrir Íslendinga þar sem allur texti er á íslensku og myndirnar á spilunum eru af íslenskum jólakökum og gúmmulaði.“ Í náminu bjó hún líka til frumgerðir af þremur spilum sem verða ekki gefin út að hennar sögn en voru engu að síður mjög lærdómsrík. „Það opnaði fyrir mér tækifæri að vinna með UNESCO við að búa til grafík á spil um verndun menningararfs okkar. Mér finnst ótrúlega gaman að pæla í því hvernig borðspil líta út því grafíkin getur lyft spili upp á hærri stall með vel útfærðri uppsetningu og útliti og getur um leið einfaldað flóknar regluskýringar. Fyrir mér eru borðspil listform með afmörkun; spilið þarf að vera skýrt og augljóst strax og þú berð það augum en einnig finnst mér mikilvægt að það sé gaman að horfa á spilið, sjá smáatriði í hönnun þess og fallegar lausnir sem koma skilaboðunum samt sem áður til skila.“
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Fleiri fréttir Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Sjá meira