Messufall verður á Drekktu betur í fyrsta sinn 19. desember 2014 12:00 ævar örn jósepsson Segir keppnina verða næst á öðrum í jólum. fréttablaðið/heiða „
Það verður messufall í fyrsta sinn í sögunni. Keppnin í kvöld fellur niður, sem hefði verið keppni númer 593,“ segir rithöfundurinn Ævar Örn Jósepsson, einn þeirra sem koma að hinni langlífu spurningakeppni Drekktu betur. Halda átti keppnina á Ölstofunni en úr því varð ekki. Er þetta fyrsta skiptið sem keppnin fellur niður í tólf ára sögu hennar en hún hefur verið haldin vikulega frá árinu 2002. „Það hefur ekki orðið messufall fyrr en nú en einhvern tímann er allt fyrst, það hlaut að koma að því. Það er einfaldlega af því að við erum á þannig stað að við höfum ekki sérrými fyrir okkur eins og þegar keppnin byrjaði á Grand Rokk. Ölstofan er náttúrulega í miðri hringiðunni í miðbænum, það verður svo stappfullt af kúnnum sem eiga leið hjá á þessum mikla verslunardegi að húsbændur á Ölstofunni vildu hvorki leggja það á okkur né aðra gesti að reyna að skeyta þessu saman,“ segir Ævar. „Það eru tímamót í þessu – Bandaríkin fara að tala við Kúbu og það verða messuföll á Drekktu betur. Það sýnir að allt geti gerst.“ Þyrstir aðdáendur keppninnar þurfa þó ekki að örvænta þar sem næsta keppni verður haldin á öðrum í jólum á Ölstofunni. - þij
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira