Náðu að bjarga Herra Níels Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar 17. desember 2014 00:01 Hér er Gríma í hlutverki apans hennar Línu, Herra Níels. Vísir/Grímur Bjarnason „
Þetta endaði sem betur fer vel og var meira að segja nokkuð fyndin saga að lokum,“ segir Ilmur María Stefánsdóttir, móðir ungu leikkonunnar Grímu Valsdóttur sem fer með hlutverk Herra Níels í Línu Langsokk. Á laugardag varð Gríma fyrir því óhappi að renna og detta á höfuðið rétt fyrir sýningu og gat því miður ekki tekið þátt. „Sem betur fer er sýningarstjórinn, hún Ingibjörg, svo skelegg að hún mældi hin börnin sem eru í sýningunni og fann út hver myndi passa í apabúninginn,“ segir Ilmur. Úr varð að Bjarni Hrafnkelsson, sem fer með hlutverk skóladrengs í sýningunni, stökk inn og lék Níels fyrir hlé. Sýningarstjórinn fór svo í það að ná í föður Mikaels, sem leikur Níels á móti Grímu. „Hún hringdi og fékk þær upplýsingar að hann væri á fundi. Eitthvað heyrði hún vitlaust og fannst eins og hann væri í sundi svo hún hringdi í allar sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu og lét kalla upp pabba Herra Níels,“ segir Ilmur og hlær. Allt fór vel að lokum og náðist í aukaleikarann sem fór upp á svið eftir hlé. Ilmur segir að Gríma sé orðin hress og taki þátt í næstu sýningu eins og ekkert hafi í skorist. „Það passar henni vel að leika apann Níels þar sem hún er algjör prílari og er eiginlega vön að detta,“ segir hún.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira