Sendir uglurnar vinsælu í frí Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar 16. desember 2014 13:30 Heiðdís Helgadóttir. Vísir „
Ég er allavega hætt að teikna uglurnar í bili. Það voru bara örfáar til á lager, þannig að ég notaði tækifærið og leyfði þeim bara að klárast,“ segir Heiðdís Helgadóttir, sem sló svo rækilega í gegn með ugluteikningunum sínum fyrir um tveimur árum. „Það var eiginlega algjör tilviljun að ég byrjaði að teikna þær. Mig vantaði sængurgjöf fyrir vinkonu mína og ákvað að teikna svona uglu fyrir hana. Þetta vatt svo bara rækilega upp á sig og allt í einu var ég farin að fá fyrirspurnir frá verslunum,“ segir Heiðdís, en í kjölfarið varð eftirspurnin mikil og hún hafði vart undan að teikna. „Ég verð alltaf þakklát fyrir þessar viðtökur. Mig óraði ekki fyrir að þetta myndi koma mér svona langt,“ segir hún. Uglurnar urðu það vinsælar hér heima að margir reyndu að feta í fótspor Heiðdísar og teiknuðu uglur í svipuðum stíl. Aðspurð hvort það hafi haft áhrif á ákvörðun hennar segir hún svo ekki vera. „Ég tek þessu frekar bara sem hrósi að fólk hafi viljað gera eins og ég. En þetta hafði ekki áhrif á ákvörðun mína,“ segir Heiðdís, sem útilokar ekki að endurvekja uglurnar síðar.Nýju myndirnar hennar HeiðdísarVísir„Ég hef fengið fyrirspurnir um þær erlendis frá og það væri gaman að senda lager þangað. Að mínu mati eru þær búnar að blómstra hérna heima,“ segir hún. Þótt hún ætli að hvíla uglurnar um sinn er hún hvergi nærri hætt að teikna. „Uglurnar voru mjög ólíkar því sem ég var vön að gera. Núna er ég að teikna meira abstrakt, meira lifandi, en allar myndirnar geri ég í höndunum og skanna svo inn,“ segir Heiðdís. Nýju myndirnar eru fjórar mismunandi teikningar byggðar á botnsjávarlífverum og ósymmetrískum lífverum í sjónum, en slík form fór hún að teikna fyrir löngu þegar hún var í arkitektanámi. "Ég var alltaf að reyna að móta byggingar út frá lífrænum formum í arkitektúrnáminu en það gekk hálf brösulega, þetta flæðir meira hjá mér með bleki og vatnslitum, segir hún og hlær,“ segir hún og hlær.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ugla yfirgefur borgina Lífið Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira