Ritlistarnemar gefa út jólabók Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 16. desember 2014 14:30 Þema Jólabókarinnar 2014 er jólaminningar. Vísir/GVA „
Þetta er í þriðja skipti sem hún kemur út og er gleðilegur jólagjörningur ritlistarnema á meistarastigi við Háskóla Íslands,“ segir Sunna Dís Másdóttir. Hún er ritstjóri Jólabókarinnar 2014 sem Blekfjelagið, nemendafélag meistaranema í ritlist, gefur út. Sögurnar í Jólabókinni eru 31 talsins, ein fyrir hvern dag í desember og er hver saga 98 orð. „Fyrsta árið var hver saga hundrað orð, alveg bara akkúrat. Í fyrra voru þær 99 orð og í ár 98 orð,“ segir hún glöð í bragði. „Við vonum náttúrulega að þetta haldi áfram að eilífu og hlökkum mikið til þess að lesa bókina eftir fimmtíu ár. Eftir níutíu ár verður hún orðin mjög minímalísk.“ Þemað í ár er jólaminning en Sunna segir túlkunina persónulega og allan gang á því hversu sannsögulegar sögurnar eru. Höfundarnir, sem eru jafn margir og sögurnar, fengu sex daga til þess að skila sögu inn í prófatíð en Sunna segir það ekki hafa komið að sök. „Kosturinn við prófatíð er að allir eru illa haldnir af frestunaráráttu,“ segir hún hlæjandi og bætir við: „Þetta kom bara í staðinn fyrir að skipuleggja sokkaskúffuna.“ Útgáfuhóf Jólabókarinnar 2014 verður í dag og hefst klukkan sex í Mengi en Jólabókin 2014 kemur í takmörkuðu upplagi.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira