Rifjar upp gamla takta Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 13. desember 2014 13:00 Lárus Halldór Grímsson fagnar sextugsafmælinu með samstarfsfólki og fjölskyldu í dag. vísir/stefán
Lárus Halldór Grímsson, tónskáld og skólastjóri Skólahljómsveitar vestur- og miðbæjar, fagnar stórafmæli í dag en hann er fæddur 13. desember árið 1954 og er því sextugur í dag. Lárus Halldór fagnar afmælinu með vinum og samstarfsfólki sem hann býður til veislu í kvöld. „Það verður partí, þetta verður svona aðallega með núverandi og fyrrverandi samstarfsfólki og fjölskyldu.“ En hann tekur afmælinu fagnandi enda ekkert annað í stöðunni að hans sögn. Allur gangur er á því hvort Lárus Halldór heldur upp á afmælið en þegar stórafmæli er í vændum er tilefni til þess að fagna. „Þetta verður nú svona stærra í sniðum núna. Það verða þarna margar hljómsveitir sem ég hef verið að spila með í gegnum tíðina. Við ætlum að rifja upp gamla takta félagarnir,“ segir Lárus Halldór, sem var í óðaönn við undirbúning afmælisins. Lárus Halldór hefur í gegnum tíðina spilað með fjölmörgum hljómsveitum. Sem dæmi má nefna hljómsveitina Þokkabót sem vakti mikla athygli fyrir þýðingu á laginu Litlir kassar eftir Peter Seeger. Lagið er á fyrstu plötu hljómsveitarinnar, Upphafið sem kom út árið 1974. Auk þess var Lárus Halldór meðlimur í Eik, Þursaflokknum og MX-21 ásamt Bubba Morthens. Lárus Halldór hefur komið víða við á tónlistarsviðinu en auk þeirra hljómsveita sem hann hefur leikið með hefur hann samið mikið efni fyrir sjónvarp, kvikmyndir og leikhús. Fyrstu skrefin í tónlistinni tók hann í skólahljómsveitinni sem hann stjórnar nú sjálfur en þar hóf hann nám á þverflautu tíu ára gamall. Árið 1971 hóf Lárus Halldór áframhaldandi tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík. Síðar lá leið hans til Hollands í skólann Institut voor sonologi í Utrecht og lauk námi þaðan árið 1984 en hélt áfram störfum við stofnunina að námi loknu. Lárus Halldór er, líkt og áður sagði, skólastjóri við Skólahljómsveit vestur- og miðbæjar og tók við starfi skólastjóra árið 1994 auk þess sem hann kennir á þverflautu, klarínett og saxófón. „Ég var í þessari skólahljómsveit sjálfur og tók við henni af Páli Pampichler Pálssyni,“ segir Lárus Halldór og bætir við að honum finnist gaman að starfa með unga fólkinu í hljómsveitinni.
Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira