Vinamargt beykitré í Álfagarði í Hellisgerði Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 12. desember 2014 11:00 Ragnhildur stendur hér við beykitréð sem hún heldur mikið upp á. Vísir/GVA
Í Álfagarðinum sem er í Hellisgerði í Hafnarfirði kennir ýmissa grasa. Þar má finna margs konar muni og handverk tengt álfum, meðal annars álfate sem unnið er úr íslenskum jurtum. Uppruni tesins er sérstakur en uppskriftina segir Ragnhildur Jónsdóttir, sem rekur Álfagarðinn, koma frá álfaseiðkonu. „Hún býr í þessu fallega beykitré sem er svolítið magnað, þetta tré á marga vini sem heimsækja það. Mennska vini á ég við,“ segir Ragnhildur en beykitréð stendur í Álfagarðinum. „Ég hef alltaf heimsótt þetta tré og þótt vænt um það frá því ég var krakki. Kom í ljós að margir sem búa hér í kring eða bjuggu hérna áður hafa heimsótt tréð. Sumir hugleiða við það og sumir koma bara og klappa því í laumi, eða ekkert í laumi. Það er bara eitthvað sérstakt við þetta tré.“ Nóg verður um að vera í Álfagarðinum á aðventunni. Nú stendur yfir myndlistarsýning með verkum eftir Ragnhildi en viðfangsefni sýningarinnar er hraunið og eru verkin unnin með blandaðri aðferð. Laugardaginn 20. desember verður kyrrðarstund við álfakirkjuna í Hellisgerði. „Kyrrðarstundin hefst klukkan tólf þegar sólin er vonandi að kíkja hérna yfir. Kerti og lítil róleg stund,“ segir Ragnhildur og bætir við að öllum sé velkomið að koma og taka þátt í kyrrðarstundinni.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Fleiri fréttir Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Sjá meira