Fylgist spennt með söfnuninni 13. desember 2014 12:00 Miklum meirihluta þeirra verkefna sem klárast hjá Karolina Fund er stjórnað af konum.
Melkorka Ólafsdóttir, flautuleikari og verkefnastjóri tónlistar í Hörpu, leggur um þessar mundir lokahönd á útgáfu geisladisks með einleiksfantasíum Georgs Philipps Telemann. Hún hóf söfnun fyrir útgáfu disksins í gegnum hópfjármögnunarsíðuna Karolina Fund fyrir nokkru og lýkur henni á morgun. Melkorku vantar örfá prósentustig upp á að heildartakmarkinu verði náð. Samkvæmt reglum Karolina Fund þarf að safna allri upphæðinni sem lagt er upp með innan tiltekins tíma. Annars er ekkert dregið af þeim sem leggja söfnuninni lið og sá sem safnar fær ekkert í sinn hlut. „Það er hluti af spennunni og hvetur fólk til að taka þátt,“ segir Melkorka.Tilbúin til dreifingar Platan var tekin upp í Langholtskirkju í vor og er tilbúin til dreifingar. „Þetta eru verk sem ég er búin að vera að vinna að lengi. Ég lagði upp í ferðalag árið 2008 og spilaði fantasíurnar í helstu kirkjum landsins. Það var um það leyti sem verið var að byggja Hörpu. Hugmyndin snerist um að spila í kirkjum sem hafa þjónað sem tónlistarhús landsmanna í gegnum aldirnar, áður en við fengjum okkar aðaltónlistarhús. Tónleikarnir fengu mjög góðar viðtökur og verkin hafa fylgt mér síðan. Þegar ég ákvað að snúa mér að verkefnastjórn í Hörpu vildi ég gera upp við þessi verk. Þetta er kannski eins konar kveðjusöngur fyrir ákveðið tímabil en framtíðin er auðvitað óráðin,“ segir Melkorka.Á vel við um jólin Þó svo Telemann hafi verið uppi á 18. öld segir Melkorka tónlistina eiga vel við í dag. „Sumir halda að tónlist frá þessum tíma sé mjög formföst og einhliða en því fer fjarri hjá Telemann eins og nafnið Fantasíur gefur til kynna. Þær eru tólf talsins og eins fjölbreyttar og hægt er að hugsa sér. Sumir kaflarnir eru mjög innilegir. Aðrir minna á götudansa. Músíkin er tímalaus og snertir marga fleti. Mér finnst hún alveg sér á parti. Hún á líka sérlega vel við um jólin.“ segir Melkorka sem undirbýr útgáfuhóf í Mengi þriðjudaginn 16. desember kl. 17. Þar mun hún taka vel á móti áhugasömum, bjóða upp á tóndæmi og annað óvænt. Utan þess að leggja lokahönd á plötuútgáfuna eyðir Melkorka helginni í undirbúning fyrir komu London Philharmonic Orchestra sem leikur í fyrsta sinn í Hörpu 18. og 19. desember næstkomandi. „Hún er ein besta hljómsveit Bretlands og þó víðar væri leitað,“ segir Melkorka. Þar hefur verið leitað að flautuleikara um nokkurt skeið og var Melkorka ein fárra flautuleikara í heiminum sem léku með hljómsveitinni til reynslu fyrr á árinu. Enn hefur enginn fyrsti flautuleikari verið fastráðinn.Vongóð um að takmarkið náist „Annars mun ég auðvitað fylgjast spennt með söfnuninni,“ segir Melkorka, sem er vongóð um að takmarkið náist. En af hverju valdir þú hópfjármögnun með Karolina Fund? „Hún er ein af fáum raunhæfum leiðum til að fjármagna plötuútgáfu, enda orðið mjög erfitt að fá styrki, þeir fáir og litlir. Þetta er líka sniðugt fyrirkomulag því fólk er í raun að kaupa afurðina fyrirfram og jafnframt að leggja sitt af mörkum til að láta verkefni verða að veruleika.“Konur betri í hópfjármögnun Karolina Fund var stofnað af þeim Inga Rafni Sigurðssyni, Jónmundi Gíslasyni og Arnari Sigurðssyni fyrir tveimur árum og hefur orðið mikil sprenging hjá þeim að undanförnu. Síðan er þegar orðin mikilvægur stólpi í styrkjaumhverfi landsins. Nú hafa 90 verkefni verið fjármögnuð með hjálp yfir níu þúsund einstaklinga en þeir hafa heitið hátt í hálfri milljón evra, eða 70 milljónum króna, til þessara verkefna. „Skilyrði sjóðsins er að verkefnin sem safnað er fyrir séu skapandi og skili einhverri lokaafurð,“ segir framkvæmdastjórinn Ingi Rafn. Hann bendir á að verkefnum sem fara af stað í fjáröflun sé til jafns stjórnað af körlum og konum. „Á milli 80 og 90 prósent verkefna sem klárast er hins vegar stjórnað af konum. Þær virðast því betri í hópfjármögnun. Ástæðu þess væri að mínu mati áhugavert að rannsaka frekar.
Mest lesið Kynlífið innantómt með öðrum en fyrrverandi Lífið Upplifði stöðugan ótta við helvíti í samfélagi múslima í Svíþjóð Lífið „Segið að ég sé samkynhneigður en ekki ljúga með hitt“ Lífið Fékk lífið til baka á korteri eftir tólf ár af sársauka Lífið Staðfesta loks sambandið Lífið Með blæðandi hjarta og ber örin með stolti Lífið Áslaug Arna kom alblóðug inn í sjúkratjaldið Lífið Þóttist ólétt, fæddi dúkkubarn og sagði það svo dáið Lífið Glæsilegt raðhús Maríu Paz til sölu Lífið Katrín og Ragnar snúa aftur með nýja bók Menning Fleiri fréttir Kynlífið innantómt með öðrum en fyrrverandi Fékk lífið til baka á korteri eftir tólf ár af sársauka Staðfesta loks sambandið Einar og Milla skírðu drenginn Með blæðandi hjarta og ber örin með stolti Krakkatían: Kvennafrídagurinn, Ólsen ólsen og málsháttur Áslaug Arna kom alblóðug inn í sjúkratjaldið Upplifði stöðugan ótta við helvíti í samfélagi múslima í Svíþjóð Getur alls ekki verið einn Fréttatía vikunnar: Ungfrú Ísland Teen, Louvre-þjófnaður og hrukkur Myndaveisla: Troðfullur miðbær á kvennafrídegi Borgarfulltrúi bjargaði stolnum barnavagni „Segið að ég sé samkynhneigður en ekki ljúga með hitt“ Notaði ákveðinn mat til að hjálpa í krabbameinsmeðferðinni „Konu“ tónleikar í Hvolnum á Hvolsvelli í kvöld Kim Kardashian greindist með heilagúlp Stjörnurnar þökkuðu Vigdísi Björk deilir „heimi sínum óspilltum“ í nýrri tónleikamynd Óttaðist um líf sitt í Delta-flugi sem nauðlenti á Íslandi Þóttist ólétt, fæddi dúkkubarn og sagði það svo dáið Sextíu fermetrar og fagurrautt Einar skipulagði eigin útför og bauð í partí „Loksins er öll fjölskyldan saman komin“ Allur tilfinningaskalinn á Ungfrú Ísland Teen Elva fann sjálfa sig aftur Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Komin með nýjan rappara í sigtið Kosning hafin um sjónvarpsefni ársins Fokk Laxness! Sjáðu allt hitt sem þú ert að missa „Svo gaman að ég steingleymdi að ég væri með annan kjól“ Sjá meira