Listaverk úr veggflísum kennara og nemenda Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. nóvember 2014 14:30 "Sumir vilja hafa dansleik á sínu svæði og aðrir andlitsmálningu. Þetta verður ekta afmælisstuð,“ segir Hólmfríður. Vísir/Stefán „
Við höfum verið að undirbúa afmælið í vikunni. Höfum til dæmis verið að ganga frá listaverki sem allir nemendur og starfsmenn eiga sína hlutdeild í. Hver og einn málaði á eina veggflís, þeim flísum var svo raðað saman í eitt verk á vegg hér innanhúss.“ Þetta segir Hólmfríður G. Guðjónsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla í Breiðholti, um hátíðahöld vegna fjörutíu ára afmælis skólans. „Svo unnum við út frá einkunnarorðum skólans, sem eru virðing, gleði og umhyggja. Settum upp tré og skreyttum það með útklipptum skýjum eða stjörnum, árituðum út frá einkunnarorðunum,“ bætir hún við. Aðspurð kveðst Hólmfríður hafa stjórnað Hólabrekkuskóla í tíu ár. „Það hafa bara verið tveir skólastjórar hér frá upphafi,“ segir hún. „Sigurjón Fjelsted var skólastjóri frá 1974 til 2004, hann tók eitt ár í námsleyfi og þá var settur skólastjóri á meðan. Svo er ég búin að vera hér frá 2004.“ Þegar haft er orð á að þetta hljóti að vera gott starf svarar Hólmfríður að bragði: „Ja, þetta er góður skóli.“ Og spurð hvort honum hafi haldist vel á kennurum líka segir hún: „Já, það er mjög stabíll kjarni hérna.“ Hólabrekkuskóli var stofnaður í september 1974 en var byggður í áföngum. Hólmfríður segir að frá september 1974 fram í desember það ár hafi kennsla á vegum skólans líka farið fram í Fellaskóla og Réttarholtsskóla. „Fyrsta skólaárið voru um 350 nemendur í Hólabrekkuskóla. Svo verður skólinn þriðji fjölmennasti skóli landsins árið 1980 með 1.150 nemendur. En í dag eru nemendur 485 talsins. Þetta er svona þróunin. Það hefur orðið breyting á ýmsu öðru líka enda er íslenskt þjóðfélag orðið mun alþjóðlegra en það var fyrir fjörutíu árum og í Hólabrekkuskóla er þversnið af því.“ Í dag verður dagskrá á sal Hólabrekkuskóla, að sögn Hólmfríðar, og sögu skólans verða gerð skil í máli og myndum. Þá verður risaterta borin á borð og foreldrafélagið ætlar að sjá um að deila henni út. „Svo verða ótal stöðvar um skólann og við tókum tillit til hugmynda nemenda þegar við skipulögðum þær, sumir vilja hafa dansleik á sínu svæði og aðrir andlitsmálningu. Þetta verður ekta afmælisstuð.“
Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlist Fleiri fréttir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Sjá meira