Dúkkan Lúlla hjálpar börnum að sofna Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 27. nóvember 2014 14:30 Eyrún með dúkkuna sem hefur róandi áhrif á börn og aðstoðar þau við að festa svefn. Vísir/GVA „
Það var saumakonan mín sem kom með hugmyndina að nafninu,“ segir Eyrún Eggertsdóttir, hönnuður Lúllu dúkkunnar sem hjálpar börnum að sofna. Hugmyndin kom þegar vinkona hennar eignaðist fyrirbura og þurfti að skilja hana eftir eina yfir nótt. Um nóttina tók litla stúlkan hlé í öndun, en það er þekkt vandamál hjá fyrirburum og getur haft alvarlegar afleiðingar. „Ég fór út frá því að hugsa hvað ég hefði lært í sálfræðinni um jákvæða eiginleika nærveru forelda og taktur hjartsláttar þeirra hjálpar fyrirburum að ná stöðugri öndun og meiri rósvefni,“ segir hún, en dúkkan spilar átta tíma af öndun og hjartsláttarhljóðum. „Lúlla er úr mjúkri náttúrulegri og ofnæmisprófaðri bómull sem má þvo. Svo er hún með blá augu og bleikar varir,“ segir Eyrún, en rannsóknir sýna að börn kjósi að horfa á eitthvað sem líkist mannsandliti og að það rói þau. „Upphaflega gerði ég dúkkuna fyrir ungbörn, en hún hentar börnum alveg upp í leikskólaaldur og hefur reynst þeim vel þegar á að skipta um rúm eða byrja í hvíld í leikskólanum,“ segir hún. Fjögur ár eru síðan Lúlla varð til, en svo hægt sé að klára framleiðsluna leitaði Eyrún til hópfjármögnunarsíðunnar Indiegogo. Þar verður hægt að kaupa dúkkuna í forsölu ódýrari en gengur og gerist.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira