Menning

Flest lögin að koma út í fyrsta sinn eða í nýjum útsetningum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Kammerkór Mosfellsbæjar Jólatónleikar kórsins eru felldir saman við útgáfutónleikana þetta árið.
Kammerkór Mosfellsbæjar Jólatónleikar kórsins eru felldir saman við útgáfutónleikana þetta árið. Mynd/Vigdís Sigurðardóttir
„Nærri helmingur efnisskrárinnar er eftir Gunnar Reyni Sveinsson en við syngjum líka lög eftir John Speight, Sigur Rós, Paco Peña og endurreisnartónlist frá Spáni.

Allt lög af hinum nýútkomna hljómdiski Mitt er þitt,“ segir Símon H. Ívarsson, stjórnandi Kammerkórs Mosfellsbæjar, um útgáfutónleikana í Háteigskirkju á morgun.



Símon segir um tónlist að ræða sem kórinn hafi flutt á tónleikum undanfarin ár og flest séu að koma út í fyrsta sinn eða í nýjum útsetningum sem ekki hafi heyrst áður.

Með kórnum spila þau Guðni Franzson á klarinettu, Ívar Símonarson á gítar, Reynir Sigurðsson á víbrafón og Lilian Dietz á blokkflautu, auk þess sem nokkrir kórfélagar syngja einsöng.

Þar sem aðventan er skammt undan segir Símon kórinn einnig syngja fáein jólalög. „Það stafar af því að hinir árlegu jólatónleikar kórsins þetta árið eru felldir saman við útgáfutónleikana,“ útskýrir hann.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Aðgangseyrir er 2.000 krónur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×