Semja dansverk í plötugerð Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 20. nóvember 2014 15:00 Halla, í pelsinum, ásamt Amöndu Apetrea. Vísir „
Við erum báðar haldnar þráhyggju um hugmyndina um rokkstjörnur,“ segir Halla Ólafsdóttir dansari, sem ásamt Amöndu Apetrea sýnir verkið Dead Beauty and the Beast á Reykjavík Dance Festival. „Verkið DEAD Beauty and the Beast er sjálfstætt framhald af verkinu okkar Beauty and the Beast, sem hefur farið sigurför um heiminn. Verkið er enn í vinnslu og við munum deila hluta af verkinu með áhorfendum,“ segir Halla. Fyrra verkið var rokktónleikar, dulbúnir sem danssýning og því fannst þeim liggja vel við að næsta verk yrði plata og í gegnum gerð plötunnar semja þær dansverk. Textarnir sem þær skrifa segir Halla vera blöndu af ljóði (poem) og klámi (porn) og þær kalla poernm. „Við erum mikið að vinna með kynlíf, kynhegðun, muninn á fantasíu og veruleika og allskyns klisjum. Það vonandi leiðir til þess að við fáum aðrar hugmyndir en þessar fyrirframákveðnu. Við erum að leika okkur með klisjur og þá hluti sem okkur finnast skemmtilegir,“ segir Halla.Halla með The Knife á Iceland AirwavesVísir/ErnirSíðustu tvö ár hefur Halla unnið með hljómsveitinni The Knife, sem kom fram á sínum síðustu tónleikum á Iceland Airwaves. „Það var ótrúlegur lúxus að vera með þeim svona lengi, þar sem verkefnin í dansinum eru yfirleitt tímabundin. Þarna gafst okkur tækifæri til þess að búa til verk í lotum og það að geta farið frá hugmyndinni og komið að henni aftur, gefur henni eigið líf,“ segir Halla.
Mest lesið Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Lífið Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Lífið Fleiri fréttir Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Sjá meira