Magnað mánudagskvöld hjá Bombay 19. nóvember 2014 11:00 Bombay Bicycle Club stóð svo sannarlega fyrir sínu og er meira en velkomið að koma aftur. Vísir/getty
Bombay Bicycle Club Silfurberg Harpan „Ég er svo spenntur að ég spila lögin alltof hratt,“ sagði Jack Steadman, söngvari bresku hljómsveitarinnar Bombay Bicycle Club, eftir nokkur lög, en hljómsveitin spilaði í annað sinn á Íslandi á mánudagskvöld. Hann sagðist hafa hlakkað mikið til þess að koma og spila fyrir „uppáhaldsfólkið sitt“. Sveitin kom hingað fyrst árið 2010 þegar hún spilaði á Airwaves en árið 2012 kom Steadman einn til landsins og spilaði á órafmögnuðum tónleikum á Hressó. Það er viss skemmtun út af fyrir sig að fylgjast með Steadman, söngvaranum síbrosandi með einstöku röddina. Tónleikarnir byrjuðu af krafti og fyrsta lagið, Overdone af nýjustu plötunni, So Long, See You Tomorrow, fór vel í salinn. Á eftir fylgdu þekktir slagarar eins og Shuffle og Lights Out Words Gone af plötunni Different Kind of Fix. Hápunktur tónleikanna var án efa þegar þeir tóku lögin Rinse Me Down og Ivy And Gold af plötunni Flaws sem kom út 2010. Steadman sagði að platan hefði einungis komið út í Bretlandi og á Íslandi og þakkaði hann sérstaklega útvarpsmönnum hér á landi sem komu henni í spilun. Allt ætlaði að verða vitlaust þegar þeir óku lagið Evening/Morning af plötunni I Had Them Blues But I Shook Them Loose frá 2009. Tökulag kvöldsins, var eins og gítarleikarinn Ed Nash orðaði það „pretty darn funky“. Hann hafði hárrétt fyrir sér þegar þeir tóku lagið With Every Heartbeat með hinni sænsku Robyn í fönkaðri dansútgáfu, sem tókst hreint út sagt stórkostlega. Dansinn hélt áfram og lagið Feel af nýjustu plötunni fór vel í áhorfendur sem dönsuðu með. Að lokum trylltu þeir salinn með laginu I's Always Like This og allir sungu og klöppuðu með. Þegar hljómsveitin gekk af sviði tók salurinn ekki vel í það og klappaði hana upp. Fyrstur á svið eftir uppklapp var trommarinn Suren de Saram sem barði bassatrommuna föstum takti og salurinn tók undir með honum. Eftir uppklapp tóku þeir What If og enduðu á Carry Me. Að lokum óskar undirrituð eftir að fá að sækja um starf syngjandi tambúrínustelpunnar þeirra, það virtist ekki vera leiðinlegt að vera hún. Niðurstaða: Þessir tónleikar voru algjör veisla fyrir aðdáendur Bombay þar sem sveitin tók sín bestu lög af öllum plötunum. Ef eitthvað, þá má setja út á hljóðið í Silfurbergi, það mætti vera hærra í græjunum.Adda Soffía Ingvarsdóttir
Mest lesið Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Menning Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira