Fyllir Sjallann í síðasta sinn Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 13. nóvember 2014 08:30 Páll Óskar trylir lýðinn í Sjallanum á gamlárskvöld í fyrra Vísir/Baldvin Þeyr Pétursson
Páll Óskar Hjálmtýsson heldur sitt síðasta Pallaball í Sjallanum á laugardagskvöld, en tuttugu ár eru síðan hann spilaði fyrst í Sjallanum. „Ég ætla að kveðja þennan fallega sal með virðingu og reisn, skreyta hátt og lágt líkt og um gamlárskvöld væri að ræða, gera þetta að eins fallegu Pallaballi og hægt er. Þetta verður mín leið til að kveðja þennan stað með virktum eftir tuttugu ára yndislega samveru,“ segir Palli. Flestir Akureyringar hafa farið á Pallaball sem yfirleitt eru smekkfull. „Það eru einhverjir töfrar þarna inni. Þetta er stærsta dansgólf á Norðurlandi og nóg pláss til að bjóða fólki upp á svið til þess að dansa með mér. Þú kemst ekki nær áhorfendum en það og þessi nánd er svo dýrmæt. Ég græt Sjallann mjög sárt eftir þessa helgi og það þarf kraftaverk til þess að annar eins staður rísi frá grunni,“ segir hann. Palli hefur spilað hvert einasta gamlárskvöld í Sjallanum í mörg ár og segist aðeins einu sinni hafa þurft að aflýsa balli, en þá voru græjurnar hans fastar á miðri leið í brjáluðu veðri. Aðspurður hvort hann tengi lokun Sjallans og lokun skemmtistaðarins Nasa saman, segir hann að við fyrstu sýn hljómi þetta eins og sama sagan.Enn og aftur lúffi tónlistarfólk fyrir hótelum. „Munurinn á Nasa og Sjallanum er sá að rekstur Sjallans hefur verið erfiður, ég geri mér fullkomlega grein fyrir því. En mér finnst það bera vott um tvöföld skilaboð þegar við Íslendingar montum okkur sífellt af blómlegu tónlistarlífi, en lokum svo fallegustu stöðunum okkar sem eru gagngert gerðir fyrir tónlistarflutning,“ segir hann og bætir við að erfitt verði að ná upp sömu stemningu annars staðar og í Sjallanum. „Í fullkomnum heimi hefði verið hægt að minnka rýmið og breyta staðnum svo hægt væri að halda honum gangandi. En eins og ég segi þá grunar mig að það hafi verið fullreynt.“Davíð Rúnar Gunnarsson, skemmtanastjóri Sjallans á Akureyri.Vísir„Sjallinn er búinn að ganga vel lengi og þetta er búið að vera algjörlega frábær tími,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson, eða Dabbi Rún, skemmtanastjóri Sjallans á Akureyri. Húsið hefur nú verið selt og til stendur að reisa hótel á lóðinni. „Ballbransinn hefur breyst mikið undanfarið og þróunin hefur því miður orðið þannig að erfiðara er að fá bönd til þess að koma og spila. Þetta hefur sett strik í reikninginn í okkar rekstri. Við fengum þetta tilboð í húsið fyrst fyrir þremur árum og það er búið að skoða það með opnum hug lengi. Því miður er þetta niðurstaðan,“ segir Dabbi, en til stendur að loka Sjallanum um áramót og reiknar hann með að síðasta ball Sjallans verði á gamlárskvöld. „Við ætlum nú að tóra út árið. En það sem okkur langar til þess að gera, er að bjóða böndunum, sem hafa troðið upp hér í gegnum árin, að koma og kveðja staðinn, halda sitt lokaball í Sjallanum. Það væri gaman að fá öll þessi gömlu bönd, sem fylltu Sjallann áður fyrr,“ segir Dabbi.
Mest lesið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Menning Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira