Miklu fegurri kona í dag Friðrika Benónýsdóttir skrifar 5. nóvember 2014 13:00 Helga Braga Jónsdóttir: „Það er bara eitthvað svo gaman að lifa, í alvöru!“ Vísir/Vilhelm
Hálf öld, takk fyrir, það verður sko partí!“ segir Helga Braga Jónsdóttir leikkona sem á fimmtugsafmæli í dag. „Reyndar bara fjölskylda og vinir sem ætla að hittast og fagna, en alvörupartí engu að síður.“ Spurð hvort hún muni ekki verja deginum í dekri segir Helga Braga það nú ekki alveg ganga upp. „Það þarf að græja snittur,“ segir hún og hlær. „Systir mín, Ingveldur Ýr, hefur reyndar yfirumsjón með veitingum, en ég hjálpa til. Fór samt í ondúleringu í gærmorgun og skelli mér svo í smink fyrir partíið. Lét meira að segja klippa á mig topp í tilefni tímamótanna, hálfrar aldar topp.“ Fimmtugsafmælið er ekki eina afmælið sem Helga Braga fagnar í ár því hún á líka 35 ára leikafmæli og 25 ára útskriftarafmæli sem leikkona. Spurð hvað henni sé efst í huga við þennan áfanga grípur hún til klisjunnar og segir: „Þakklæti, vinir mínir, þakklæti,“ og skellihlær. „Ég er bara að springa úr hamingju,“ bætir hún við. „Það er bara eitthvað svo gaman að lifa, í alvöru!“ Helga Braga er á fullu í uppistandi, fyrirlestrahaldi og að skemmta á kvennakvöldum og segir það hafa verið aðalatvinnu sína síðan 1998, þótt hún hafi auðvitað alltaf verið að leika í leikhúsum, bíómyndum og sjónvarpsþáttum meðfram því. „Ég er bara að gera alls konar ofsalega skemmtilegt,“ segir hún. „Mér líður svo miklu, miklu betur og ég lít miklu betur út en ég hef nokkurn tíma gert. Jú, ég var ógurlega krúttaralegt barn en ég er miklu fegurri kona núna en ég var um tvítugt eða þrítugt. Það er eins og það hafi bara ræst úr mér.“ Spurð hvort hún hafi einhver plön fyrir seinni hluta ævinnar neitar Helga Braga því en segist hins vegar hafa plön fyrir seinnihluta þessa mánaðar. „Ég er að fara til New York og á tónleika með Billy Joel í Madison Square Garden, hvorki meira né minna. Þar er langráður draumur loks að rætast. Það er ein af mörgum afmælisgjöfum sem ég gef sjálfri mér, ég er nefnilega búin að vera að gefa mér afmælisgjafir allt þetta ár, enda á ég svo mörg afmæli.“
Mest lesið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Fleiri fréttir Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Sjá meira