Tveggja tíma spuni Valgerður Þ. Jónsdóttir skrifar 4. október 2014 11:00 Auðunn Lúthersson tónlistarmaður með stjórnendum leikhópsins til beggja handa, Hrefnu Lind Lárusdóttur og Halldóru Mark. vísir/valli ,,
Leikhússpuni er alltaf jafn spennandi, maður labbar inn og veit ekkert hvers konar tónlist og hreyfingar fæðast,“ segir Auðunn Lúthersson, nemi í djassdeild FÍH, sem ásamt Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur stofnaði raftónlistardúettinn Himbrim á dögunum. Þau hafa í samstarfi við Hrefnu Lind Lárusdóttur staðið fyrir æfingum í Tjarnarbíói þar sem dúettinn spinnur tónlist og hópur sviðslistamanna endurómar hana með líkamstjáningu – eða öfugt. Þótt Þórdís Björk verði fjarri góðu gamni hyggst Auðunn halda uppi merkjum dúettsins í tveggja tíma samfelldum miðnæturspuna í Tjarnarbíói í kvöld. „Hrefna Lind fer fremst í flokki dansaranna og var helsta driffjöðrin í æfingunum í sumar. Hún stundar nám í leikrænni líkamstjáningu, physical theater, í háskóla í Colorado eins og Halldóra Mark, sem einnig verður með í miðnæturspunanum auk fleiri listamanna,“ segir Auðunn og útskýrir sinn þátt í spunanum. „Ég spila eigin tónlist á tölvuna mína, sem ég er áður búinn að forrita, t.d. með gítarstefjum, jafnvel söng, og get um leið unnið tónlistina og átt við hana eins og hentar spunanum. Stundum er tónlistin róleg, stundum algjörlega geðveik, allt eftir því hvert spuninn leiðir mig. Í stuttu máli er verkið samspil tónlistar og hreyfingar.“ Auðunn segir miklar tilfinningar og dýnamík í spilinu sem og, eðli málsins samkvæmt, í líkamstjáningu sviðslistamannanna. Hann notar yfirleitt ekki aftur tónlistina úr spunanum en viðurkennir að hún verði sér stundum uppspretta hugmynda. „Spunatónlistin er í raun einnota, hún fæðist í augnablikinu og er skemmtilegust á því augnabliki,“ segir hann. Þórdís Björk er ein af Reykjavíkurdætrum og segir Auðunn að tildrög þess að þau tvö stilltu saman strengi megi rekja til þess að hann samdi undirspil við rapp og söng þeirra Borgardætra. „Svo fattaði ég hvað Dísa er frábær söngkona og í kjölfarið fórum við að vinna saman.“ Dúettinn hefur nokkrum sinnum komið fram, t.d. á tónlistarhátíðinni Gærunni á Sauðárkróki. „Við höfum gefið út tvö tónlistarmyndbönd, Running in Circle og Thinking about You, og erum að hugleiða frekari útgáfu. Við erum þó lítið að pæla í plötuútgáfu, platan er dauð, aðalfókusinn er að vinna að skemmtilegu myndefni, tengja það við tónlistina og koma á YouTube.“All Change-sviðslistahátíðinni Miðnæturspuninn er hluti af All Change-sviðslistahátíðinni. All Change-hátíðin er samstarfsverkefni Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO, Tjarnarbíós og Vinnslunnar og tengist dagskráin Lestrarhátíð Reykjavíkur. Hátíðin, sem er haldin 4. og 5. október í fimm borgum; Reykjavík, London, Augsburg, New York og New Orleans, byggir á alþjóðlegu samstarfi leikhúslistamanna og er hluti af bresku hátíðinni Fun Palaces.
Mest lesið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Fleiri fréttir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein