"Ég varð sköllóttur á árinu, varð fertugur á árinu og verð pabbi á því nýja“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 3. október 2014 13:30 Jón Gunnar með börnunum sínum tveimur. vísir/ernir „
Fyrir tuttugu árum fannst mér fertugt fólk vera það elsta í heiminum. Ég er ekki alveg sammála því í dag. Allt er þetta bara hugarástand, þessi blessaði aldur. Ég varð sköllóttur á árinu, varð fertugur á árinu og verð pabbi á því nýja. Það þýðir ekkert annað en að brosa í gegnum tárin yfir því að eldast,“ segir Jón Gunnar Geirdal, oft kallaður frasakóngur Íslands. Hann fagnar fertugsafmæli sínu í dag og verða veisluhöldin ekki af lakara taginu. „Ég byrja á því að vakna og knúsa börnin mín. Svo er mér boðið í afmælisbröns sem systur mínar þrjár eru búnar að skipuleggja heima hjá móður minni. Síðan ætla ég að kíkja í kokteilboð hjá vinum mínum í RVK Studios og í kjölfarið borða eitthvað gott. Því næst verður blásið til veislu í Reiðhöllinni Spretti í Kópavogi þar sem ég ætla að henda upp litlu sveitaballi,“ segir Jón Gunnar, sem rekur fyrirtækið Ysland. Skemmtikraftar í afmælisveislunni eru ekkert slor. „Það eru forréttindi fyrir gamla manninn að hafa verið í bransanum svona lengi og eiga svona marga vini. Þeir sem skemmta eru meðal annars Eiríkur Hafdal, Jón Jónsson, Kaleo, Skítamórall, Friðrik Dór, Páll Óskar og Blaz Roca. Síðan ætlar Ingó að vera með netta útgáfu af brekkusöng. Svo henda einhverjir af fyndnu vinum mínum, eins og Sveppi og Logi Bergmann, í gamanmál. Númer eitt, tvö og þrjú verður að brosa, hafa gaman og skála.“ Jón Gunnar lætur sér ekki nægja að halda eina afmælisveislu því hátíðahöldin halda áfram á morgun. „Félagarnir verða ræstir út í bröns á Laundromat um miðjan dag á laugardag. Þaðan verður haldið á English Pub að horfa á annaðhvort Stjörnuna eða FH tryggja sér titilinn og síðan er ferðinni heitið á efri hæðina á Austur að sjá Nelson kyrkja Kanann. Við ætlum að borða þar og hirðplötusnúðurinn minn til margra ára, Margeir Ingólfsson, þeytir skífum. Þetta verður „double trouble“,“ segir Jón Gunnar. Hann hræðist ekki að eldast. „Ég er búinn að tala um mig í þriðju persónu í nokkur ár og kalla mig oft „gamla“. Það að verða fertugur er ekkert mál í mínum haus. Sköllóttur, gamall, fertugur karl í Kópavogi. Það er bara mantran.“ En hvað stendur upp úr á þessum fjörutíu árum? „Ég verð að vera pínulítið væminn og segja fæðing barna minna. Ég á tvo litla gríslinga og einn á leiðinni þannig að það er að bætast í Geirdalaherinn. Svo hef ég verið blessaður með því að vinna með skemmtilegu fólki að skemmtilegum verkefnum í 25 ár.“
Mest lesið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Sjá meira