Djammspáin fyrir helgina er klár Gunnar Leó Pálsson skrifar 1. ágúst 2014 09:00 Sigríður Klingenberg ráðleggur fólki í makaleit að vera ekki of ölvað. vísir/gva „
Aðaldjammið verður eins og svo oft áður í Vestmannaeyjum og það er alveg sama þótt það rigni eldi og brennisteini, það er alltaf skemmtilegast í Eyjum og ástin býr í Eyjum,“ segir Sigríður Klingenberg en Fréttablaðið vildi forvitnast um hvar djamm- og skemmtispáin væri best fyrir verslunarmannahelgina og sló á þráðinn til Siggu Kling. Sigga fer fögrum orðum um Vestmannaeyjar og segir að þeir sem einhleypir séu eigi góða möguleika á að finna maka sinn á Þjóðhátíð. „Það er fullt af fólki sem hittir makann sinn í Eyjum, fólk þarf bara að passa sig að vera ekki of ölvað svo það geti skoðað vel í kringum sig,“ segir Sigga. Hún vill meina að orkan sé einnig svo góð í Eyjum og að það séu töfrar sem sem myndast í dalnum. „Þetta umhverfi er svo fallegt og veðrið skiptir engu máli. Ég myndi samt segja að það séu mestu líkurnar á að hitta makann inni í dal, í brekkunni eða á röltinu í dalnum. Í öðru sæti er Mýrarboltahátíðin á Ísafirði, þar verður góð stemning en þó öðruvísi en í Eyjum. „Það er mikla karlmennsku að finna á Ísafirði, það verður mikið um skítuga karlmenn en þeir eru samt svo dreifðir þarna. Þeir eru líka að fara keppa, þeir eru ekki beint að leita sér að konu, heldur frekar að keppa,“ segir Sigga um ástina á Ísafirði. Hún segir þó að það sé ekki hægt að finna skemmtilegra fólk en á Vestfjörðum en að konur þurfi þó að hafa mjög mikið fyrir því að ná sér í alvöru Vestfirðing. „Stelpan má bara ekki vera í galadressinu sínu, hún á helst að vera í lopapeysu og gallabuxum og leyfa freknunum að sjást.“ Sigga vill einnig meina að Mýrarboltinn sé frábær uppfinning og fagnar þessari rísandi hátíð.Dalurinn heillar marga, er ástin þín þar?Mynd/EinkasafnFyrir utan Mýrarboltann og Þjóðhátíð segir hún aðrar hátíðir einnig líta vel út. „Aðrar hátíðir líta vel út, það er gott fyrir þá sem ætla að skilja lifrina eftir heima að fara annað, það er að segja þeir sem vilja ekki lengur vera þekktir fyrir djammið.“ Sigga ráðleggur þó fólki að vera ekki að drekka Tópas ef manneskjan er í makaleit. „Ef þú vilt muna eitthvað þá skaltu halda þig frá Tópas.“ Ef allt klikkar um verslunarmannahelgina er Sigga með góða lausn. „Ef makaleitin gengur illa þá mæli ég með að fólk fari á Fiskidaginn á Dalvík, það er mikil rómantík þar. Ef þú kemur heim með öngulinn í rassinum þá er Fiskidagurinn handan við hornið, engar áhyggjur.“
Mest lesið Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Tónlist Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Bíó og sjónvarp Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist „Hún sagði já“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Sjá meira