200 eldislaxar sluppu úr kví Svavar Hávarðsson skrifar 1. apríl 2014 07:00 Allur lax sem alinn er við Ísland er af norsku kyni. Fiskurinn sem slapp var í sláturstærð; þrjú til fimm kíló. Stöð2/Sigurjón
Laxar sluppu fyrir slysni úr sláturkví Fjarðalax í Patreksfirði í nóvember síðastliðnum. Um 200 fullvaxta laxar sluppu, áætla starfsmenn fyrirtækisins. Enginn lax veiddist aftur þótt laxanet væru sett í sjó samdægurs og látin liggja í tíu daga eftir atvikið. Jónatan Þórðarson, eldisstjóri Fjarðalax, segir að atvikið hafi orðið í afar slæmu veðri 27. nóvember þegar sláturskipið Arnarfell HF-90 kom að kvíunum um morguninn. Áhöfnin byrjaði að festa skipið eins og venja var en átti í vandræðum með festingu sem slitnaði, með þeim afleiðingum að báturinn snerist og lenti stefnið þvert á kvínni með þeim afleiðingum að hún skemmdist og gat kom á pokann sem heldur fiskinum inni. „Þetta voru 200 fiskar sem sluppu. Við vitum það með mikilli nákvæmni því mjög lítið var eftir í kvínni,“ segir Jónatan. Slysasleppingar úr laxeldi hafa verið nokkuð í umræðunni hér á Íslandi og erlendis, en sjóeldi á laxi er af mörgum litið hornauga vegna hugsanlegrar hættu á erfðablöndun norska eldiskynsins sem hér er notað og villtra íslenskra stofna. Jónatan segir umræðuna á villigötum og hættuna af erfðamengun frá eldisfiskinum hverfandi litla. „Í þessu tilfelli er magnið lítið og fiskurinn er ókynþroska. Hans eðli er að synda undan straumi þannig að þessir fiskar munu drepast í sjó,“ segir Jónatan og bætir við: „Þessi framandi eldislax sem við erum með verður svo seint kynþroska að hann myndi aldrei ganga í laxveiðiá fyrr en mörgum árum eftir að hann sleppur. Því eru líkurnar á því að hann drepist í sjó í millitíðinni yfirþyrmandi miklar.“ Fjarðalax greip til þess ráðs eftir atvikið að bæta festingar og auka með þeim eftirlit. Nýjar og sterkari sláturkvíar voru teknar í notkun svo og nýir pokar úr „sterkasta efni sem völ er á“ í þessari starfsemi, eins og segir í skýrslu Fjarðalax til Fiskistofu. Guðni Magnús Eiríksson, sviðsstjóri hjá Fiskistofu, segir aðspurður að atvikið sé það eina sem er á skrá Fiskistofu frá síðastliðnum fimm árum. Leita verði mörg ár aftur til að finna stórar slysasleppingar, en þar sem laxeldi í sjó hefur verið lítið við Ísland hafi ekki verið við því að búast að atvik sem þessi kæmu upp.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira