Geta ekki fyrirskipað hreinsun olíulóðar Garðar Örn Úlarsson skrifar 28. febrúar 2014 07:00 Hafnarbraut 6 er menguð af olíu eftir rekstur olíubirgðastöðvar á lóðinni. Heilbrigðiseftirlitið segir hreinsun sem gerð var ekki hafa dugað til. Lóðin er nú á skilgreindu útivistarsvæði sem nær inn á hafnarsvæðið. Fréttablaðið/GVA „
Úrskurðurinn er kominn og hann er ótvíræður,“ segir Ríkharður Friðriksson hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja um þá niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að ekki sé hægt að mæla fyrir um hreinsun á olíumengaðri lóð í Njarðvík. Olíudreifing rak olíubirgðastöð við Hafnarbraut þar til 2001 að hún var lögð niður og olíutankar rifnir. Á árinu 2010 fékk fyrirtækið verkfræðistofu til að meta hversu menguð lóðin væri. Niðurstaða, að sögn Olíudreifingar, var sú að nauðsynlegt hafi verið að fjarlægja um 200 rúmmetra af jarðvegi og hafi síðan 330 rúmmetrar verið fjarlægðir.Sextán grömm í hverju kílói Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja tók í lok nóvember 2011 jarðvegssýni úr Hafnarbrautarlóðinni og sendi þrjú sýni í greiningu á rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði. Niðurbrotin dísilolía í sýnunum reyndist vera 12,1 til 16,6 grömm á kíló. Í reglugerð um meðferð úrgangs segir að olíumagn í jarðvegi megi ekki vera meira en 5 grömm á kíló – sem eru skilgreiningarmörk á óvirkum úrgangi. Með vísan í þessa reglugerð sendi Heilbrigðiseftirlitið Olíudreifingu bréf og sagði að fyrirtækið ætti að hreinsa lóðina betur. Olíudreifing taldi reglugerðina um meðferð úrgangs hins vegar ekki eiga við um lóðina á Hafnarbraut 6 heldur ætti að vinna samkvæmt leiðbeiningum Hollustuverndar ríkisins um meðferð á olíumenguðum jarðvegi. Heilbrigðiseftirlitið hélt sig hins vegar við kröfuna um hreinsun lóðarinnar og benti á að samkvæmt leiðbeiningum Hollustuverndar ætti Olíudreifing að láta gera áhættumat.Standa á gati Í kæru til úrskurðarnefndarinnar segir Olíudreifing að ekki hafi verið um urðun úrgangs að ræða heldur hafi lóðin mengast vegna starfsemi fyrirtækisins. Úrskurðarnefndin kveður Heilbrigðiseftirlitið ekki „styðjast við viðhlítandi lagaheimild“ og því sé ákvörðun þess felld úr gildi. Niðurstaðan er nú til skoðunar hjá Heilbrigðiseftirlitinu. „Við stöndum á gati hér en miðað við þennan úrskurð held ég að við getum ekkert frekar gert,“ segir Ríkharður Friðriksson. Miðað við úrskurðinn sé ekki hægt að miða við áðurnefnt gildi í reglugerðinni um meðferð úrgangs. Ríkharður bendir á að yrði olíumengaði jarðvegurinn á Hafnarbraut grafinn upp þá mætti ekki urða hann á urðunarstað fyrir almennan úrgang.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Sjá meira