Innlent

Styrkja Hestamannafélagið Sprett um 12 milljónir

Elimar Hauksson skrifar
Hestamannafélagið Sprettur fær styrkinn til að ráðstafa til reksturs nýrrar reiðhallar og til barna- og unglingastarfs.
Hestamannafélagið Sprettur fær styrkinn til að ráðstafa til reksturs nýrrar reiðhallar og til barna- og unglingastarfs. Mynd/Daníel
Kópavogsbær og Garðabær hafa gert samkomulag við Hestamannafélagið Sprett um rekstrarstyrk vegna starfsemi félagsins með það að markmiði að efla barna- og unglingastarf á vegum þess.

Sveitarfélögin munu hvort um sig greiða sex milljónir gegn því að Sprettur ráðstafi styrknum til reksturs nýrrar reiðhallar og til barna- og unglingastarfs.

Sprettur vígði á dögunum nýja 4.000 fermetra reiðhöll á Kjóavöllum en reiðhöllin er sú stærsta á landinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×