Elliheimili gert að létta leynd af skýrslu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 11. febrúar 2014 08:45 Nýr framkvæmdastjóri Höfða var ráðinn í maí í fyrra. Fyrrverandi bæjaritari sem fékk ekki starfið segir ráðninguna hafa verið pólitíska. Mynd/Höfði
Jón Pálmi Pálsson var starfsmaður Akranesskaupstaðar í aldarfjórðung, lengst sem bæjarritari og síðast sem settur bæjarstjóri. „Ég veit ekki af hverju framkvæmdastjóri eða stjórnarformaður hafa ekki sent mér skýrsluna og veit reyndar ekki hvað þeir óttast í því samhengi,“ segir Jón Pálmi Pálsson sem hefur ekki fengið skýrslu um fjármál dvalarheimilisins Höfða þó að úrskurðarnefnd um upplýsingamál segi að veita eigi aðgang að skýrslunni. Jón Pálmi, sem er fyrrverandi bæjarstjóri og bæjarritari á Akranesi til margra ára, var einn 26 umsækjenda um starf framkvæmdastjóra Höfða. Jón Pálmi fékk ekki starfið heldur Kjartan Kjartansson, sem fram að umsóknarferlinu sat í stjórn Höfða.Ekki hagsmunir almennings að leyna skýrslunni Jón Pálmi óskaði eftir endurskoðunarskýrslu vegna ársreiknings Höfða fyrir 2012. Stjórn Höfða neitaði og leitaði Jón Pálmi þá til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál. „Það getur ekki verið um að ræða slíka viðskiptahagsmuni stofnunarinnar að leyna þurfi bæjarbúa upplýsingum, enda um opinbera stofnun að ræða,“ sagði í kæru Jón Pálma. Stjórn Höfða sagði upplýsingar í endurskoðunarskýrslunni geta valdið stofnuninni tjóni ef þær yrðu gerðar aðgengilegar. Úrskurðarnefndin bendir í úrskurði frá 28. janúar á að yfir 90 prósent af rekstrarfé Höfða séu frá ríkinu og að hvorki almannahagsmunir né einkahagsmunir standi til þess veita ekki aðgang að skýrslunni.Segir Höfða ekki hafa sinnt hagræðingu „Um þetta get ég svo sem ekkert sagt annað en það að auðvitað er það viðkvæmt þegar stofnun er rekin með umtalsverðu tapi og það ekki einungis í eitt ár,“ segir Jón Pálmi aðspurður hvers vegna hann telji stjórn Höfða ekki vilja að uppskátt verði um innihald skýrslunnar. „Það hlýtur að benda til þess að nauðsynlegt sé að taka til í rekstrinum og leita leiða til hagkvæmari reksturs, en það er nú ekki það sem stjórn Höfða hefur gert og það í skjóli bæjarstjórnar sem ekki heldur hefur haft vilja til að leita hagræðingar,“ segir Jón Pálmi sem látinn var hætta sem settur bæjarstjóri í desember 2012 eftir að hafa tvírukkað akstursgreiðslur.Fær ekki skýrsluna en má glugga í hana Jón Pálmi segist ekki sjá annað en að „hörð pólitík“ hafi ráðið við val í framkvæmdastjórastarfið. „Það er greinilegt að búið var að ákveða hver skyldi fá hnossið.“ Þessu hafnar Kristján Sveinsson, formaður stjórnar Höfða. „Við völdum hæfasta manninn að því er okkur fannst,“ segir Kristján sem kveðst einmitt hafa verið að ganga frá bréfi til Jóns Pálma. „Hann fær ekki skýrsluna en hann fær aðgang að henni. Jón Pálmi má koma niður á Höfða og þar útvegum við honum aðstöðu til að lesa hana. Hann fær ábyggilega kaffi og kleinur líka.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Sjá meira