Bæjarfélagið viðurkennir gildi Sjálfstæðisfélagsins Munins í Vogum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. febrúar 2014 10:00 Sjálfstæðisfélagið Muninn í Vogum vill afnot af tveimur fundarsölum bæjarins. Í staðinn lofar félagið meðal annars að senda fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins. Fréttablaðið/GVA „
Þetta er hjákátlegt,“ segir Bergur Álfþórsson, bæjarfulltrúi E-listans, um tillögu í bæjarráði Voga um að sveitarfélagið geri samstarfssamning við Sjálfstæðisfélagið Muninn. Það var Oddur Ragnar Þórðarson af H-lista, forseti bæjarstjórnar og formaður Munins, sem lagði fram drög að samstarfsamningnum en vék síðan af fundi. Samkvæmt samningnum ætti Muninn að fá aðgang að tveimur sölum í eigu bæjarins til að funda tólf sinnum á ári. Ákvæði er um að Sveitarfélagið Vogar viðurkenni „þjónustuhlutverk og gildi Munins í samfélaginu og Muninn hlutverk sitt og skyldur gagnvart íbúum“ í Vogum. „Ég fæ ekki séð hvernig pólitísk samtök geta óskað eftir því að sveitarfélag viðurkenni þjónustuhlutverk og gildi pólitísks félags,“ segir Bergur Álfþórsson, sem óskaði eftir skýringum á þessu atriði og fleirum. Bergur Álfþórsson, bæjarfulltrúi E-lista í Vogum.Óviðeigandi segir samstarfsmaður „Það verður mjög spennandi að sjá hvort formaður Sjálfstæðisfélagsins getur komið með svar við því hvernig það þjónar hagsmunum íbúa sveitarfélagsins að hann fari á landsfund Sjálfstæðisflokksins,“ bætir Bergur við en ákvæði um þessa fundarsókn er einmitt í samningnum. Meirihluti í bæjarstjórn Voga er myndaður af þremur fulltrúum H-lista og einum fulltrúa L-lista. Sá er Kristinn Björgvinsson. Á bæjarráðsfundinum sagði Kristinn „óviðeigandi að sveitarfélagið geri samstarfssamninga við stjórnmálasamtök“.Oddur Ragnar Þórðarson, forseti bæjarstjórnar Voga.Vill ýta undir menningarleg gildi Oddur kveðst ekki bjartsýnn á framgang málsins eftir umræðuna í bæjarráði. „Þeim sem sátu þennan fund fannst þetta eitthvað óþægilegt. Hugsanlega tengist það því að það eru kosningar eftir örfáa mánuði. Ég sé ekki grundvöll fyrir því að ná þessu í gegn þegar þessir menn láta svona,“ segir Oddur sem bendir á að sveitarfélagið geri einmitt samstarfssamninga við ýmis önnur félög: „Svona starfsemi ýtir undir pólitísk, menningarleg og félagsleg gildi. Tilgangurinn er að draga inn máttarstólpa og áhugaverða karaktera í þjóðfélaginu til að ræða málin ítarlega.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Sjá meira