Góður árangur af lestri nemenda fyrir hunda Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 7. febrúar 2014 07:30 Þessi mynd var tekin á stofnfundi Vigdísar í fyrra. Boðið verður upp á hundalestur fyrir börn í bókaversluninni Iðu í Lækjargötu síðasta laugardag í hverjum mánuði.
Samtökin Vigdís – Vinir gæludýra á Íslandi bjóða upp á svokallaðan hundalestur í bókaversluninni Iðu í Lækjargötu síðasta laugardag í hverjum mánuði nú í vetur. Þá mega börn á aldrinum sex til 12 ára koma og lesa fyrir hund sér til ánægju og yndisauka, að sögn Margrétar Sigurðardóttur, formanns Vigdísar. „Fyrsta verk samtakanna, sem voru stofnuð í fyrra, var að koma á fót hér á landi lestrarverkefni að bandarískri fyrirmynd. Í Bandaríkjunum kallast verkefnið READ eða Reading Education Assistant Dog. Þar hefur það reynst sérlega vel til að hvetja börn til yndislesturs og ekki síður til að liðsinna börnum með lestrarerfiðleika, til dæmis fjöltyngdum börnum og lesblindum,“ greinir Margrét frá. Hún segir tilraunaverkefninu hér á landi hafa verið komið á í einum grunnskóla í fyrravor og því er haldið áfram nú. „Þá lesa nokkrir nemendur vikulega upphátt fyrir hund og sjálfboðaliða. Kennarar, foreldrar og börn hafa verið mjög ánægð með þessa lestraraðferð.“Margrét SigurðardóttirSjálf er Margrét að gera rannsókn á aðferðinni í meistaranámi sínu í Háskóla Íslands. „Niðurstöður rannsókna sem gerðar hafa verið erlendis á áhrifum þessarar aðferðar eru allar á sama veg. Áhugi á lestri eykst og sömuleiðis lestrarhraði og lesskilningur. Sjálfstraust barnanna eflist og viðhorf til bókalesturs verður jákvæðara.“ Margrét leggur áherslu á að þeir sem hafi áhuga á slíku verkefni hafi samband við samtökin til að fá leiðbeiningar og ráð og mat á hundunum þar sem samtökin hér eru í samstarfi við READ-samtökin í Bandaríkjunum. Þeir sem vilja skrá börn sín í lestrarstund í Iðu geta gert það hér og hefst skráning nú um helgina. Þeir sem ekki eru félagsmenn greiða 500 krónur fyrir skiptið, en félagsmenn geta komið með barn í lestur án endurgjalds.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira