Kaffihúsi við Elliðaár hafnað í bili Garðar Örn Úlfarsson skrifar 4. febrúar 2014 07:15 Kaffihúsið Allt að 80 gestir áttu að geta komist fyrir úti og inni í þessu kaffihúsi rétt hjá Árbæjarstíflu. Mynd/Plús-ARKITEKTAR
Hugmynd um nýtt kaffihús við Elliðaár neðan Stekkjarbakka var hafnað hjá skipulagsfulltrúa að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir slíkum rekstri í deiliskipulagi Elliðaárdals og heildarendurskoðun skipulagsins stendur fyrir dyrum. Einstaklingar sem vildu fá að reisa kaffihús með útiverönd kváðust telja vanta veitingastað í dalinn og „að hann myndi jafnvel ýta undir meiri aðsókn að Elliðaárdalnum“ eins og segir í umsögn skipulagsfulltrúans. Reksturinn ætti að stórum hluta að byggja á gangandi umferð. Á lóðinni sem umsækjendurnir höfðu í huga stendur nú gamalt, ónotað verkstæði. Skipulagsfulltrúi segir engan byggingarreit á lóðinni og að húsið hafi verið byggt fyrir tíma deiliskipulagsins. „Samkvæmt gildandi skipulagi er ekki gert ráð fyrir húsnæði í dalnum sem gæti nýst sem kaffihús, en í stefnu aðalskipulags um borgargarða þá má gera ráð fyrir veitingaaðstöðu á slíkum svæðum,“ segir skipulagsfulltrúi sem kveður fleiri staði fyrir veitingastaði í Elliðaárdalnum hafa komið til umræðu í gegnum árin. „Hefur þarfagreining ekki átt sér stað hvort slík starfsemi sé æskileg fyrir dalinn, né hver er besta staðsetningin,“ segir skipulagsfulltrúi sem vísar hugmyndinni inn í fyrirhugaða vinnu við heildarendurskoðun deiliskipulags Elliðaárdalsins sem vonast sé til að hefjist á þessu ári.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Sjá meira