Nálgast verkin á óhefðbundinn máta Ólöf Skaftadóttir skrifar 30. janúar 2014 10:00 Ragnheiður Gestsdóttir MYND/Úr einksafni „
Við erum búin að vera að vinna að myndinni í nokkur ár og útkoman er tilraunakennd mynd sem blandar saman skáldskap og raunveruleika,“ segir Ragnheiður Gestsdóttir, myndlistarmaður og annar leikstjóri kvikmyndarinnar Æ ofan í æ, sem byggð er á ævi og list myndlistarmannsins Hreins Friðfinnssonar. Þetta er í fyrsta sinn sem mynd er gerð um Hrein, en hann hefur notið gríðarlegrar velgengni sem myndlistarmaður um alla Evrópu. Ásamt Ragnheiði leikstýrir myndinni Markús Þór Andrésson sýningarstjóri. „Við nálgumst verkin hans Hreins á óhefðbundinn hátt. Við notum listina og hans líf sem innblástur í sögur sem við svo segjum í myndinni,“ útskýrir Ragnheiður. Markús og Ragnheiður kynntust Hreini fyrir rúmum áratug. „Við heilluðumst af manninum og verkunum og urðum öll vinir. Það var svo seinna sem hugmyndin að myndinni kom til,“ bætir hún við, en myndin verður frumsýnd á kvikmyndahátíð í Helsinki í Finnlandi á laugardaginn.Markús ÞórMYND/Úr einkasafni„Við fengum boð um að sýna myndina þar, sem er mikill heiður og við hlökkum til. Við erum með meðframleiðendur í Finnlandi og í aðalhlutverki er Kati Outinen, en hún er finnsk leikkona og eflaust hvað best þekkt fyrir að leika í nánast öllum myndum leikstjórans Aki Kaurismäki, sem er ein vinsælasta útflutningsvara Finna,“ segir Ragnheiður, létt í bragði. Auk Kati, leikur Hreinn sjálfur í myndinni og Magnús Logi Kristinsson, en hann er íslenskur myndlistarmaður sem búsettur er í Finnlandi. Myndin verður frumsýnd á Íslandi í tengslum við sýningu sem þau Markús og Ragnheiður setja upp í Nýlistasafninu á verkum Hreins í kringum Listahátíð í apríl.
Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum Áskorun Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Fleiri fréttir Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sjá meira