Íslensk sænorn slær í gegn í Telegraph Gunnar Leó Pálsson skrifar 22. janúar 2014 09:30 Erla Brynjarsdóttir er hér í gervi Sænornarinnar í Litlu Hafmeyjunni. Hún hefur fengið mikið lof fyrir túlkun sína á hlutverkinu. mynd/Ben Bransbury-Hare „
Það er þvílíkt stórt fyrir mig, þetta gefur manni svo mikið og eru ákveðin verðlaun fyrir alla vinnuna sem maður hefur lagt í þetta,“ segir hin 26 ára gamla leikkona Erla Brynjarsdóttir sem er nýkomin heim eftir langa dvöl í London þar sem hún lék í verkinu Litlu hafmeyjunni. Hún hefur fengið prýðisdóma í virtum erlendum miðlum á borð Telegraph, The Stage og One Stop Arts fyrir leik sinn í verkinu. Litla hafmeyjan var sett saman af leikhóp sem samanstendur af fjórum breskum leikurum sem voru með Erlu í bekk í Rose Bruford College í London en hún útskrifaðist þaðan árið 2011. „Þau kalla sig Blind Tiger Theatre Company og er hópurinn núna tveggja ára. Þau hafa áður sett upp tvær leiksýningar sem hefur hlotið einróma lof áhorfenda,“ útskýrir Erla. Litla Hafmeyjan fjallar um líf skáldsins H.C. Andersen og tvinnast saman við upprunalegu útgáfuna af ævintýrinu um hafmeyju sem hlýtur dapurleg örlög. Alls voru 36 sýningar sýndar í Riverside Studios-leikhúsinu í Hammersmith-hverfi í London. „Ég fór með fjögur hlutverk í sýningunni en þeirra stærst var hlutverk sænornarinnar og mér til mikillar ánægju hafa breskir gagnrýnendur ausið mig lofi fyrir þá túlkun,“ segir Erla létt í lundu. Erla hefur lítið unnið hér á landi því strax eftir útskrift árið 2011 var hún ráðin sem sögumaður í sjö mánuði hjá spænsku leiklistarfyrirtæki sem heitir Forum Teatro y Educación. „Ég bjó í Valencia en kom fram og ferðaðist um alla Spán að heimsækja leikskóla og barnaskóla til að kenna spænskum börnum ensku í gegnum leiklist. Sýningarnar voru tvær og þær voru Pinocchio og Hamelin the Flutist.“ Hún bætir við að þar hafi hún upplifað bæði sínar verstu martraðir og einnig þvílíka sigra.Erla Brynjarsdóttir hefur að mestu starfað erlendis en er hér á landi sem stendur.mynd/einasafnErla sneri til Íslands eftir Spán og var ráðin sem svokallaður gestgjafi hjá Bláa Lóninu. „Þetta var tilraunaverkefni hjá fyrirtækinu en fjórir leikarar voru ráðnir til þess að vera með um klukkutíma leiðsögutúr um lónið þrisvar á dag, taka fríar myndir af gestum í lóninu og sjá til þess að upplifun gesta væri sem best með alls konar hætti. Þetta er frábær vinna sem gefur manni aukna reynslu og lærdóm í samskiptum við alls konar fólk og karaktera af ólíkum uppruna sem kemur sér vel í leiklistinni,“ útskýrir Erla. Hún hefur þó að undanförnu verið tíður gestur á skjám landsmanna í tveimur vinsælum sjónvarpsauglýsingum. Þá sneri hún til London í nóvember síðastliðnum og lék í Litlu hafmeyjunni við frábærar undirtektir eins og fram hefur komið. Sem stendur starfar Erla sem gestjafi í Bláa Lóninu en stefnir ótrauð á enn meiri frama í leiklistinni.
Mest lesið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Lífið samstarf Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira