Vilja að konurnar taki sér meira rými Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 16. janúar 2014 07:00 Konur úr öllum flokkum voru sammála um að grípa þurfi til aðgerða. Vísir/GVA „
Það er ánægjulegt að viðskipta- og iðnaðarráðherra hafi tekið af skarið um að hún ætli ekki að afnema lögin um hlutföll kynja í stjórnum fyrirtækja,“ sagði Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra í samtali við Fréttablaðið á blaðamannafundi í gær þar sem kynnt var sameiginleg aðgerð allra stjórnmálaflokka til að hvetja til vals á konum í forystusæti í stjórnmálum og atvinnulífinu almennt.Ragnheiður Elín Árnadóttir viðskiptaráðherra boðaði í vikunni til lokaðs fundar með fulltrúum frá atvinnulífinu til að fá fram ólíkar skoðanir á lögunum. Ráðherrann var framsögumaður minnihlutaálits viðskiptanefndar á sínum tíma þar sem fram kom skýr andstaða við lagasetninguna. Hún sagði í viðtali við Fréttablaðið á þriðjudag að hún muni ekki taka lögin til endurskoðunar núna á vorþingi. Upphaf þessarar aðgerðar sem kynnt var í gær má rekja til fundar Eyglóar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra með formönnum allra stjórnmálaflokka í Ráðherrabústaðnum þar sem rætt var um nauðsyn þess að velja konur til forystu í flokkunum. „Ég studdi þessa lagasetningu á sínum tíma og tel að það þurfi að koma meiri reynsla á framkvæmd laganna og áhrif þeirra áður en farið er að fjalla um að afnema þau.“ sagði Eygló. „Við erum hér samankominn hópur kvenna sem erum ósammála um langflest en höfum ákveðið að vinna saman að því sem við erum þó sammála um,“ sagði Eygló Harðardóttir í samtali við Fréttablaðið. Hún sagði viðbrögðin á fundinum í ráðherrabústaðnum við þessu átaki og áskorun hafa verið misjöfn. „En það var ákveðið að taka þetta mál á næsta skref og þess vegna boðum við til þessa fundar,“ sagði Eygló. Fulltrúar kvennahreyfinga allra flokka á Alþingi stóðu að fundinum í gær ásamt formönnum Kvenréttindafélagsins, Kvenfélagasambandsins og Femínistafélagsins. Fulltrúar flokkanna voru hver og einn með stutta framsögu á fundinum þar sem þær lýstu nauðsyn þess að konur jafnt sem karlar skipuðu forystusæti í stjórnmálum og atvinnulífinu og boðaðar voru frekari aðgerðir af þessum meiði. Meðal þeirra sem tóku til máls var Heiða Kristín Helgadóttir, annar formanna Bjartrar framtíðar, sem varaði þá sem væru með kvíðahnút í maganum yfir þessu átaki við því að hnúturinn ætti aðeins eftir að stækka. Þá sagði Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, svona framtak mikilvægt, en raunverulegar aðgerðir þurfi líka að koma til. Hún bætti við að ef konur ætluðu sér að taka meira rými, þá þyrftu einhverjir að gefa það eftir eðli málsins samkvæmt. Í aðgerðinni verður samfélagsmiðlum beitt til að ná árangri í jafnréttisbaráttunni. Allar konur eru hvattar til að setja mynd með slagorðinu inn á Fésbókarsíðu sína og deila henni áfram. Í því felst „kvennabylgjan“ og fer hún fram á Fésbókarsíðum. Myndina má sjá hér að neðan.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira