Loftmyndir í þýskum veðurfréttum Freyr Bjarnason skrifar 15. febrúar 2014 07:00 Arthúr Björgvin, fréttamaðurinn Björn Alexander og myndatökumaðurinn Dirk Schwarz með flugvélina. Mynd/Dirk Schwarz
Myndatökumaður og veðurfréttamaður frá NTV í Þýskalandi, sem er hluti af RTL-sjónvarpsstöðinni, taka þessa dagana upp veðurfréttir sínar á Íslandi. Nokkur ár eru síðan þeir gerðu þetta síðast. „Þeir eru orðnir miklir Íslandsvinir. Þeir eru búnir að bíða eftir því að sjá flott veður á Íslandi á veðurspánni og núna eru þeir að fá algjört toppveður,“ segir Arthúr Björgvin Bollason, kynningarfulltrúi Icelandair í Mið-Evrópu. Hann er þeim innan handar meðan á þriggja daga dvöl þeirra stendur. Þjóðverjarnir eru með litla flugvél meðferðis með myndavél sem þeir senda upp í loft, allt að tvö hundruð metra, og mynda íslenska landslagið. Í gær sendu þeir flugvélina á loft fyrir ofan Perluna, Geysi og Þingvelli og náðu þar flottum myndum. „Hið merkilega er að svona aðferð hefur ekki verið notuð við veðurfréttir í Þýskalandi fram að þessu. Ísland er sem sagt fyrst í röðinni,“ segir Arthúr. Veðurfréttirnar eru birtar tíu til tólf sinnum á dag og ná þær um þriggja milljóna áhorfi á hverjum degi. Sjónvarpsskjánum er skipt í tvennt. Annar hlutinn er með þýsku veðurfréttunum en hinn með myndum frá Íslandi. „Þetta er dúndur auglýsing, alveg svakaleg,“ segir Arthúr Björgvin.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira