Lífið

Dagur Tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur í dag

Marín Manda skrifar
Mikill fjöldi í skólanum Það var góð þátttaka þegar Tónlistarskóli Ísafjarðar hélt tónleika árið 2012.
Mikill fjöldi í skólanum Það var góð þátttaka þegar Tónlistarskóli Ísafjarðar hélt tónleika árið 2012.
Tónlistarskóli Ísafjarðar heldur þrenna tónleika en fyrstu tónleikarnir hefjast í Ísafjarðarkirkju kl. 16 í dag. 

„Það hefur verið ákveðið að halda þennan dag hátíðlegan árlega til að vekja athygli á því mikla starfi sem fram fer í tónlistarskólum landsins. Í tilefni dagsins standa tónlistarskólar víðs vegar um landið fyrir ýmsum uppákomum, tónleikum, opnu húsi eða fara á vistheimili. Skólarnir eru mikill hluti af menningarlífinu í hverju byggðarlagi og því ert vert að fylgjast með því,“ segir Ingunn Ósk Sturludóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar.

Á Ísafirði hyggst tónlistarskólinn halda þrenna tónleika og að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á yngstu nemendurna. Um fimmtíu börn frá aldrinum fimm til 11 ára munu bera hitann og þungann af tónleikunum með söng undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur og Rúnu Esradóttur. Undirleikurinn verður í höndum strengjasveitar tónlistarskólans undir stjórn Januzar Frach.

Börnin munu syngja Þúsaldarljóð Sveinbjörns I. Baldvinssonar og Tryggva M. Baldvinssonar, en verkið var frumflutt á Kristnihátíð árið 2000, þar sem 1.000 ára kristni var minnst á Íslandi með eftirminnilegum hætti. „Við höldum eina tónleika í dag og leggjum áherslu á samspil almennt en börnin munu koma fram í hópum, tríóum eða dúóum. Auk samspilshópanna verða þrjár lúðrasveitir og gítarsveit. Kennarar og nemendur skólans hafa unnið ötullega að þessum tónleikum sem vonandi verða fjölsóttir og skemmtilegir.“

Miðvikudaginn 19. febrúar fara fram tvennir tónleikar kl. 18 og kl. 19.30 með fjölbreyttri efnisskrá. Þegar talið berst að áhugasviði nemenda segir Ingunn Ósk að margir velji að læra á gítar og píanó eða söng. „Á landinu öllu eru starfandi níutíu tónlistarskólar með í kringum fimmtán þúsund nemendur.

Samkvæmt námsskrá er lögð áhersla á að krakkarnir kynnist sem flestum hljóðfærum og læri samspil. Það er svo mikilvægt að krakkarnir nái saman í tónsköpun sinni og tónlistarflutningi,“ segir Ingunn Ósk létt í bragði. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.