Þorbjörg kölluð Skandinavíska orkugyðjan í The Times Marín Manda skrifar 8. maí 2014 13:00 Þorbjörg Hafsteinsdóttir segir velgengni bókarinnar vera stóran áfanga í sínu lífi.
Næringarþerapistinn Þorbjörg Hafsteinsdóttir gerir það gott í Bandaríkjunum en metsölubókin hennar, 10 árum yngri á 10 vikum, er komin á bandarískan markað og rokselst úr hillunum. Hún hefur ekki undan að svara erlendum fjölmiðlum. „Þetta er svolítið stór áfangi í mínu lífi og ég er komin þangað sem ég gjarnan vildi vera til að koma mér á heimsmarkaðinn. Bókin mín, 10 árum yngri á 10 vikum, er komin í sölu á bestu stöðunum í Bandaríkjunum og ég er búin að fá rosalega góða umfjöllun,“ segir Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringarþerapisti sem er nýkomin til baka úr mánaðar kynningarferð í New York. Þar var hún stödd til að halda fyrirlestra og kynna bókina sem er nýútkomin á bandaríska markaðinn á prenti en einnig sem rafbók fyrir Kindle. „Bókin er seld hjá Barnes and Noble og er nú þegar númer eitt í þremur flokkum á Amazon svo að núna byrjar ballið fyrir alvöru,“ segir Þorbjörg og er augljóslega ánægð með árangurinn. Þorbjörg segir það einnig vera í kortunum að gefa bókina út í Bretlandi og í lok apríl var birt opnuviðtal við Þorbjörgu í The Times þar sem hún er kynnt sem skandinavíska orkugyðjan eða The Scandi Vitality Goddess.Greinin úr The Times„The Times sendi blaðamann til Kaupmannahafnar til þess að hitta mig og gera umfjöllun. Hún var búin að kynna sér bókina mjög vel og ég held að henni hafi komið á óvart hve afslöppuð ég er í lífstílnum. Ég er ekki 100 prósent gúrú eins og margir ímynda sér að maður sé. Hlutirnir eru ekki heilagir og hún var ánægð að sjá það fyrir hönd annarra kvenna því konur nenna ekki að lifa þannig, þrátt fyrir að vilja fá leiðbeiningar á ýmsum sviðum,“ segir hún hlæjandi. „Maður mætir heiminum með sinni reynslu og maður verður að þora að fara nýjar leiðir. Fyrir mér er það eins mikið „antiage“ eins og að líta vel út.“ Fleiri fréttamiðlar hafa sýnt Þorbjörgu og bókinni áhuga en bæði The Mail og Huffington Post hafa sóst eftir viðtali.
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ Sjá meira