Veðjað um næsta útvarpsstjóra Jakob Bjarnar skrifar 22. janúar 2014 15:02 Þessi sex eru mögulegir kandídatar að mati veðmálasérfræðinga Betsson.
Veðmálafyrirtækið Betsson hefur sett upp veðmál og geta menn veðjað á hver verður næsti útvarpsstjóri. Sérfræðingar fyrirtækisins meta það sem svo að líklegastur til að verða fyrir valinu, þá er Capacent hefur farið yfir allar umsóknir, að stjórnin velji Magnús Geir Þórðarson sem arftaka Páls Magnússonar. Hann er með stuðulinn 2,25. Betsson hefur valið sex nöfn úr pottinum, þeirra sem sækja um stöðuna. Næstlíklegastur að mati Betsson er Bjarni Guðmundsson með stuðulinn 2,50. Salvör Nordal er sú þriðja með stuðulinn 3,40 þá kemur Guðjón Petersen með stuðulinn 4, Stefán Jón Hafstein telst ekki líklegur kandídat að mati Betsson-manna en hann er með stuðulinn 6 og lestina rekur Ólína Þorvarðardóttir sem er með stuðulinn 8. Þetta þýðir einfaldlega það að vilji einhver veðja á Ólínu, gerir svo og leggur þúsund krónur undir þá fær sá hinn sami 8 þúsund krónur ef Ólína verður útvarpsstjóri. Ólína kemst þó á blað sem er meira en hægt er að segja um helftina en 39 sóttu um stöðuna. Ef einhver annar en þeir sem Betsson-menn leggja upp sem mögulega, svo sem Hrafn Gunnlaugsson eða Ólafur Páll Gunnarsson svo handahófskennd dæmi séu nefnd, þá tapa menn sínum veðmálum. Að sögn talsmanna Betsson var þetta ákveðið eftir að veðmálasérfræðingar höfðu ráðfært sig við nokkra álitsgjafa; tvo reynslumikla blaðamenn að sögn sem og þungavigtarmenn úr Sjálfstæðisflokknum. Samkvæmt Betsson lýkur veðmálinu 31.01.2014. Að sögn Ingva Hrafns Óskarssonar, formanns stjórnar RÚV ofh, er stefnt að því að ganga frá ráðningunni fyrir mánaðarmót.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfarenda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira