Telur að fleiri hafi misnotað móður hennar Kristjana Arnarsdóttir skrifar 16. janúar 2014 20:31
Dóttir þroskaskertrar konu, sem segir að stjúpfaðir sinn og bræður hans hafi misnotað hana í um fjörutíu ár á sveitabæ á Snæfellsnesi, segir það mikil vonbrigði að ríkissaksóknari hafi ákveðið að láta málið niður falla. Í kvöldfréttum RÚV þann 8. janúar var greint frá því að málið hafi verið fellt niður sökum þess að gögn málsins hafi ekki þótt nægjanleg til sakfellingar. Brotin hafi annars vegar verið fyrnd og hins vegar hafi orð staðið gegn orði. Sigríður Sóldal, dóttir þroskaskertu konunnar, var í viðtali í Kastljósi í kvöld en hún telur að fleiri karlmenn hafi misnotað móður sína. Fyrrverandi eiginmaður Sigríðar bíður þess nú að sakamál gegn honum verði tekið fyrir í Héraðsdómi Vesturlands en hann hefur viðurkennt að hafa misnotað tengdamóður sína. Sigríður ólst upp á sveitabænum og segir að margt í hennar æsku hafi verið óeðlilegt. Hún hafi áttað sig á því á fullorðinsárum. Á sveitabæinn hafi komið menn í heimsókn og stoppað stutt, sem Sigríði þótti skrýtið þar sem sveitabærinn var ekki í alfaraleið. Hún segir að sig gruni að fleiri en bræðurnir og fyrrum eiginmaður hennar hafi notfært sér ástand móður sinnar. Amma hennar hafi jafnframt vitað af athæfi mannanna og telur Sigríður að hún sé í raun meðsek í brotum fósturafa hennar. Maðurinn var handtekinn í mars í fyrra og sat um tíma í gæsluvarðhaldi. Konan er nú um fimmtugt en grunur leikur á því að hann hafi misnotað hana frá því að hún var barn. Konan greindi frá því að maðurinn, tveir bræður hans sem nú eru látnir og tengdasonur sinn hefðu allir brotið gegn sér. Réttargæslumaður fatlaðra á Vesturlandi og Vestfjörðum, Jón Þorsteinn Sigurðsson, segir í viðtali Kastljóss ætla að aðstoða konuna í því að halda áfram með málið og mun hann leita leiða til þess að fá málið skoðað að nýju. Sigríður vildi ekki tjá sig nánar um málið við fréttastofu að svo stöddu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira