Bökuðu afmælisköku 23. nóvember 2014 11:00 "Besta kaka sem ég hef smakkað,“ segir stóra skrímsli. "Besta kakan fyrir besta vininn,“ segir litla skrímslið. Mynd/Áslaug Jónsdóttir
Skrímsli, hvað finnst ykkur skemmtilegast að gera? Ss: Veiða! Og synda! Og klifra í trjám! Ls: Mér finnst skemmtilegast að teikna og tefla skrímslaskák og lesa bækur. Ss: Þú ert alltaf að lesa. Hafið þið einhvern tímann farið í fýlu hvort út í annað? Ss: Nei. Ls: Jú, stóra skrímsli, manstu það ekki? Ss: Jú, kannski. Þú kýldir mig! Ls: Ég veit það! Ég fékk svakalega magapínu á eftir. Hvernig náið þið að sættast? Ss: Það bara gerist. Ls: Já, það er miklu skemmtilegra að vera vinir en óvinir. Ss: Og manni líður svo illa, eins og maður hafi étið lifandi eiturfisk. Eða svona pírata-fisk sem bítur… Ls: Þú meinar pírana-fisk. Já, stundum er gott að hugsa hvernig það sé að vera hitt skrímslið. Til dæmis ef ég hugsa hvernig það er að vera stóra skrímslið og ef stóra skrímslið hugsar um hvernig það er að vera ég. Ss: Ég vildi nú ekkert vera litla skrímslið mjög lengi. Ls: Nei, það er best að vera maður sjálfur. Eruð þið góðir vinir? Af hverju er gott að eiga góðan vin? Ss: Já! Vinir geta gert svo margt skemmtilegt saman. Ls: Við erum samt ekki alltaf saman. En það er gott að eiga vin. Við getum hjálpast að. Litla skrímsli, hvernig vinur er stóra skrímsli? Ls: Stóra skrímslið er sterkt og duglegt og alltaf til í að fara út að gera eitthvað skemmtilegt. Stóra skrímsli, hvernig vinur er litla skrímsli? Ss: Litla skrímslið kann mjög margt, það kemur alltaf með góð ráð. Eigið þið gæludýr? Ss: Já, núna! Ls: Ég á mjög fínan kisa, skrímslakisa. En stóra skrímslið vildi … Ss: Æi, ekki segja. Tölum um eitthvað annað. Er það rétt að kisi sé týndur? Ss: Já, nei, ég meina, hann týndist en fannst aftur. Ls: Það er hægt að lesa um það allt í nýju bókinni um okkur. Hún heitir Skrímslakisi. Ss: Ég skil ekki af hverju það er alltaf verið að skrifa um eitthvað svona í bókum. Þó það hafi gerst. Til hamingju með tíu ára afmælið! Hver bakaði kökuna? Ss: Sko, litla skrímslið átti hugmyndina. En ég hjálpaði til. Litla skrímslið las uppskriftina og mældi, ég hrærði deigið. Og kremið. Ls: Það var nú varla nógu mikið krem eftir, þú varst alltaf að smakka. Ss: Þetta er líka besta kaka sem ég hef smakkað, litla skrímsli! Ls: Besta kakan fyrir besta vininn, stóra skrímsli!
Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Fleiri fréttir Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Sjá meira