Hvetur börn til þess að hafa trú á sér Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 4. desember 2014 11:00 Sædís er hér með sonum sínum, Manúel og Daníel, en þeir veittu henni innblástur við gerð bókarinnar. Mynd/StúdíóLinnet
Sædís Sif Jónsdóttir gaf á dögunum út barnabókina Draumálfurinn Dísa. Kveikjan að bókinni vaknaði eftir að fyrsti sonur Sædísar kom í heiminn. Þegar hann fór að stálpast fór hún að horfa á barnaefni og lesa barnabækur í auknum mæli. „Upphaflega var ég að hugsa um mín börn, af því að ég vildi að þau vissu að ég myndi trúa á þau og þeirra drauma. Svo langaði mig til þess að hvetja önnur börn til þess að trúa á sig og sína drauma.“ Bókin segir söguna af draumálfinum Dísu sem er óhrædd við að láta sig dreyma og hvetur vini sína tvo, bræðurna Manna og Danna sem eru kóngulær, til þess að hafa trú á sér. „Af því að ég er svolítið mikil draumóramanneskja sjálf leit ég að vissu leyti á mig sem draumálfinn. Kóngulærnar eru synir mínir, þeir eru litlu prakkararnir í kringum draumálfinn,“ segir Sædís, sem á synina Manúel Jón og Daníel Ísak. Manúel Jón átti sinn þátt í því að skapa draumálfinn Dísu en hún var sköpuð að hluta út frá teikningu eftir hann. Draumálfurinn Dísa er byggð á teikningu eldri sonar Sædísar.MYND/ALYSSAERIN„Það var svolítið þannig að ég var alltaf að teikna eitthvað á blað. Hann var duglegur að fylgjast með mér af því að hann elskar að teikna með mér og tók eftir því að ég var alltaf að teikna það sama. Eitt kvöldið kemur hann með teikningu til mín og þetta er fyrsti draumálfurinn sem hann gerði.“ Sædís og myndskreytari bókarinnar, Alyssa Erin, notuðu teikningu Manúels Jóns sem fyrirmynd að Dísu. Sædís útskrifaðist sem markþjálfi fyrir rúmu einu og hálfu ári. Það var í október eftir námskeiðið Konur til athafna hjá Sigrúnu Lilju Guðjónsdóttur, eiganda Gyðju Collection, sem Sædís fylltist krafti og ákvað að kýla á hugmyndina. „Ég fór á námskeið hjá Sigrúnu Lilju og fékk svaka kraft úr námskeiðinu og fór strax í þetta eftir það. Námskeiðið var í október og ég dreif bara í þessu.“ Þegar Sædís hafði samband við bókaforlög tjáðu þau henni að hún væri of sein til þess að koma bókinni út á þessu ári en þá ákvað hún að taka málin í sínar hendur og gefa bókina út á eigin spýtur. Hún hefur því séð um alla markaðssetningu og dreifingu á bókinni sjálf. Draumálfurinn Dísa fæst meðal annars í verslunum Eymundsson.
Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Sjá meira