Mallorca, miklu meira en sólarströnd 27. desember 2014 11:00 Sumarferðir bjóða aftur upp á ferðir til Mallorca og verða með vikulegt beint flug í allt sumar.
Mallorca er sannkölluð fjölskylduperla í Miðjarðarhafinu. Sumarferðir bjóða aftur upp á ferðir til Mallorca og verða með vikulegt beint flug í allt sumar. Rík áhersla er lögð á að þarfir fjölskyldufólks hjá Sumarferðum. „Sumarferðir skipuleggja ferðir fyrir fjölskyldur sem vilja gæðaferðir á viðráðanlegu verði,“ segir Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir vörumerkjastjóri Sumarferða. Rík áhersla er lögð á að þarfir fjölskyldufólks hjá Sumarferðum og eru áfangastaðir Sumarferða valdir með vilja og þarfir fjölskyldna að leiðarljósi. Af áfangastöðum Sumarferða má nefna Almería, Alicante ,Tenerife, Kanarí og Mallorca. „Við veljum hótelin einnig af mikilli kostgæfni. Það þarf að hafa í huga að umhverfið sé fallegt, herbergin rúmgóð og að börnin hafi nóg við að vera í hótelgarðinum, svo eitthvað sè nefnt.“Kristbjörg Kona KristjánsdóttirFerðaskrifstofan býður nú, eftir nokkurra ára hlé, uppá ferðir til Mallorca í sumar. „Við einfaldlega spurðum fólkið okkar hvað það vildi og þetta var niðurstaðan,“ segir Kristbjörg og hefur margt gott að segja um þá sólríku eyju. „Mallorca er einn vinsælasti áfangastaður sólarlandafara í Evrópu og ekki að furða því eyjan býður upp á svo margt fleira en hótelgarða. Eyjan sólríka er rómuð fyrir náttúrufegurð, hvort sem fólk er að leita að fallegri fjallasýn eða tærum sjó við afviknar strendur. Mallorca státar einnig af fjöbreyttri menningu, frá rómantískri spænskri sveitamenningu til heimsborgarlegrar borgarmenningar. Þá er gaman aka um sveitirnar, sjá bændur að störfum og drekka nýkreistan ávaxtasafa í forsælu á fjallstindi,“ lýsir Kristbjörg. Hótel sem skilja eftir góðar minningar Á Mallorca geta viðskiptavinir Sumarferða valið á milli fjölda vandaðra gististaða á þremur svæðum á norðausturhluta eyjarinnar; Alcudia, Playa de Muro og Can Picafort. „Þessi hluti eyjarinnar er algjör náttúruperla enda er svæðið gróið og fallegt. Norður Mallorca varð líka sérstaklega fyrir valinu vegna þess hve strendurnar eru hreinar og fallegar,“ segir Kristbjörg og bendir á að ströndin henti sérlega vel fyrir börn enda sé hún aðgrunn og sjórinn hlýr. Í miðbæ Alcudia er boðið uppá fjölskylduhótel þar sem stutt er á veitingarstaði og verslanir en Playa de Muro og Can Picafort bjóða hótelinþar upp á sérhannaða og spennandi hótelgarða og ósvikna náttúru paradís. Allir þurfa eitthvað „Á Mallorca viljum við geta boðið fjölskyldum uppá afslappandi, þægilegar og eftirminnilegar upplifanir. Boðið er uppá dagsferðir til nálægra þorpa á borð við Polleca og heimsóknir til höfuðborgarinnar Palma, sem þykir ein hreinasta og fallegasta borgin við Miðjarðarhafið og þar er einnig gott að versla. Þá mæli ég sérstaklega með að aka um eyjuna og kanna fagurt umhverfið,“ segir Kristbjörg. Fjölskyldustefna Sumarferða nær líka til flugferðarinnar en boðið er upp á mjög barnvænt, beint flug á góðum tíma, með léttri máltíð og afþreyingu um borð. „Mallorca er málið fyrir Íslendinga í sumar. Þar færðu allt í einum pakka, frábært veður, fallegt og öruggt umhverfi sem og einstaka gestrisni eyjaskeggja,“ segir Kristbjörg og býður öllum að leita nánari upplýsinga á sumarferdir.is.Mallorca Sumarferða er fyrir þá sem vilja:Frábær hótel NáttúrufegurðMenningu og söguÆðislega ströndSkemmtigarða Öruggt umhverfiBarnaklúbbaSol de AlcudiaAlcudia Sol de Alcudia er gott þriggja stjörnu hótel staðsett um 500 metra frá ströndinni í Alcudia. Verslanir og veitingarstaðir eru næsta nágrenni. Í sundlaugargarðinum er góð sólbaðsaðstaða með bekkjum, sólhlífum, sundlaugabar, veitingastað, sundlaug og barnalaug.VIVA BluePlaya de Muro Íbúðahótelið VIVA Blue er á frábærum stað, aðeins 200 metra frá Muro ströndinni í Playa de Muro. Hvað afþreyingu varðar er af nógu að taka því hægt er að spila tennis, fótbolta, körfubolta og bandí/hokkí.
Mest lesið Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Lífið „Eins og verstu unglingar í sleepover“ Makamál „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Lífið Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Lífið Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Lífið Grease-stjarnan Susan Buckner látin Lífið Anníe Mist fór í keisaraskurð Lífið „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Lífið 23 ára og með sína eigin förðunarlínu Tíska og hönnun Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum Lífið Fleiri fréttir Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira