Giftu sig á afmælinu en muna ekki hvaða ár Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 19. nóvember 2014 15:00 "Ég ætla bara að hafa eitthvað smávægilegt í dag með fjölskyldunni en ætli ég haldi svo ekki partí í desember,“ segir Bryndís Halla. Vísir/Vilhelm
Þegar Bryndís Halla Gylfadóttir er spurð út í eftirminnilegasta afmælið fer hún að hlæja. „Ætli það sé ekki þegar ég og maðurinn minn ákváðum að gifta okkur? Við vorum búin að vera saman lengi og þetta var á afmælinu mínu en það er svo fyndið að við munum hvorugt hvaða ár það var!“ Eiginmaður Bryndísar Höllu er Þórður Magnússon tónskáld, sonur Megasar. Þau hjón eiga fimm börn og Bryndís Halla segir flest þeirra hafa verið fædd þegar brúðkaupið fór fram. „Við foreldrarnir skildum börnin eftir heima meðan við skruppum til dómara og létum hann pússa okkur saman. Mamma hringdi meðan við vorum í ferðinni og spurði hvort ég væri heima, „Nei,“ svaraði lítill sonur okkar „Hún er að gifta sig!“ Við vorum á kafi í framkvæmdum á þessum tíma og maðurinn minn sem hefur mjög gaman af gömlum húsum fann eitthvert húsablað á biðstofunni hjá dómaranum. Þegar við vorum kölluð til athafnarinnar gat hann ekki slitið sig frá lestrinum svo dómarinn sagði: „Þú mátt bara eiga þetta blað. Komdu nú!“ Nú er afmælisbarnið innt eftir upprunanum að íslenskum sið. „Ég hef verið svo mikið úti um allt að ég veit ekki hvaðan ég er,“ svarar það í hálfkæringi. „Ég er dóttir Gylfa Baldurssonar, heyrnar-og talmeinafræðings, og Þuríðar Rúríar Jónsdóttur taugasálfræðings og er auðvitað alíslensk en ég fæddist í Ameríku og svo bjuggum við lengi í Kanada.“ Annatími er hjá Bryndísi Höllu um þessar mundir eins og svo mörgu tónlistarfólki. Því verður hálfrar aldar afmælið hófstillt að hennar sögn. „Ég ætla bara að hafa eitthvað smávægilegt í dag með fjölskyldunni en ætli ég haldi svo ekki partí í desember. Síðustu ár hef ég passað að taka ekki of mörg verkefni að mér á aðventunni svo lífið róast hjá mér þegar nær líður jólum.“
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira