Hanna lífræna barnafatalínu Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 3. desember 2014 09:30 Helga Ólafsdóttir yfirhönnuður Ígló&Indí og Guðrún Tinna Ólafsdóttir framkvæmdastjóri. Vísir
Íslenska barnafatamerkið Ígló&Indý ætlar í fyrsta sinn að senda frá sér lífræna barnafatalínu, en undirbúningur línunnar hefur staðið yfir í nokkurn tíma. „Þessi lína er ókynbundin og kemur í stærðum frá þriggja mánaða upp í átta ára,“ segir Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Igló&Indí. Merkið hefur vakið mjög mikla athygli erlendis undanfarið og fengið heilmikla umfjöllun á stórum erlendum bloggum og á samfélagsmiðlum. Tinna segir því að áhuginn frá Skandinavíu kalli á framleiðslu á lífrænum fatnaði. „Skandinavía er mjög upptekin af lífrænni framleiðslu og hún opnar margar dyr fyrir okkur þar sem verslanir vilja geta boðið upp á lífrænan fatnað, þá sérstaklega fyrir nýfæddu börnin,“ bætir Tinna við. „Þetta snýst líka um stefnu fyrirtækisins þar sem við viljum sýna samfélagslega ábyrgð.“ Línan, sem kemur í verslanir í janúar, inniheldur tíu flíkur og er öll unnin úr mjúkri lífrænni bómull. „Bómullin er ekki lituð heldur er hún bara í grunnlitnum. Allt sem prentað er á fötin er framleitt undir lífrænum stuðli,“ segir Helga Ólafsdóttir yfirhönnuður Igló&Indí. „Við völdum svo pandabjörn á línuna vegna þess að pandan er í útrýmingarhættu og þess vegna völdum við hana,“ bætir Helga við.Hægt er að skoða nýju lífrænu línuna í jólabækling Ígló & Indí á heimasíðu þeirra, en línan er væntanleg í verslanir í janúar 2015.
Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlist Fleiri fréttir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Sjá meira