Margt sem nú þykir hversdagslegt byrjaði hér Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 3. desember 2014 15:00 "Við vorum frumkvöðlar í fjölmenningardönsum og því var starfsemin innspýting í listalífið,“ segir Hafdís. Fréttablaðið/ Vilhelm Vísir/ Vilhelm
Afró, tangó, samba, salsa, flamengo, magadans og Bollywood. Allt eru þetta dansar sem hafa verið iðkaðir í Kramhúsinu í þrjátíu ára sögu þess. Það hefur alltaf verið rekið á sama stað, við Skólavörðustíg 12, í einu af hinum földu bakhúsum í miðborginni. „Það var mikil þörf fyrir Kramhúsið á sínum tíma,“ segir stofnandinn Hafdís Árnadóttir. Frá fyrstu stundu fluttum við inn gestakennara í dansi, leiklist og látbragðsleik. Margt sem nú er þekkt og þykir hversdagslegt byrjaði hér. Við vorum frumkvöðlar í fjölmenningardönsum og því var starfsemin innspýting í listalífið,“ segir hún og nefnir sem dæmi að afródansar hafi verið stór þáttur í starfseminni. „Við erum alltaf með kennara frá Gíneu að kenna afródans og trommararnir eru sestir að hér á landi. Hingað komu kennarar frá Bandaríkjunum að kenna djassdans og nútímadans og frá Danmörku og Englandi að kenna leiklist og dans. Argentínski tangóinn blossaði upp 1985, þá var Svisslendingur staddur á landinu að skrifa leikrit, labbaði hér inn og spurði hvort hann gæti fengið að kenna tangó, hann vantaði pening til að geta dvalið lengur á Íslandi. Hann varð vinsæll og kom hingað af og til í tíu ár en rak líka tangóstúdíó í Zürich.“ Sjálf kveðst Hafdís kenna dans og leikfimi, en hafði hún kynnst svona starfsemi annars staðar í heiminum þegar hún kom Kramhúsinu á fót? „Já, ég hafði sótt námskeið í Englandi og Danmörku og kynntist dansverkstæðum þar sem blandað var saman dansi, leiklist og spuna. Árni Pétur Guðjónsson leikari kenndi spuna hér hvað lengst og Anna Richardsdóttir dansari frá Akureyri var þá nýkomin úr kennslu í Svíþjóð. Við vorum svo heppin að fá til okkar fólk með nýja strauma.“ Hafdís nefnir líka leiksmiðju fyrir börn sem fastan lið í Kramhúsinu. Þar er blandað saman tónlist, leiklist og margs konar hreyfingu. „Elfa Lilja Gísladóttir tónlistarkennari mótaði barnakennsluna og hefur sinnt henni lengst af,“ segir hún. Nú var Kramhúsið að gefa út bók sem inniheldur sögu þess í þrjátíu ár í máli og myndum og ber titilinn Kramhúsið – orkustöð í miðbænum. „Hún Brynhildur Björnsdóttir skrifaði bókina og svo sáu þeir um útlitið grafíski hönnuðurinn Tómas Jónsson og Spessi ljósmyndari,“ upplýsir Hafdís og segir bókina einungis fáanlega í Kramhúsinu.
Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlist Fleiri fréttir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Sjá meira