Biðlar til Hönnu Birnu að bjarga fjölskyldu sinni Jón Júlíus Karlsson skrifar 10. mars 2014 20:03
Mæðgur frá Kólumbíu sem synjað var um dvalarleyfi hér á landi hafa kært úrskurð Útlendingastofnunar til Innanríkisráðuneytisins. Þær óttast örlög sín þurfi þær að snúa aftur til Kólumbíu. Forstjóri Útlendingastofnunar viðurkennir að úrskurður í málinu hafi tekið of langan tíma.Mary Luz Suarez Ortiz kom hingað til lands í hópi flóttamanna fyrir sjö árum. Hún hefur meðal annars vakið athygli hér á landi fyrir þátttöku sína í sjónvarpsþættinum MasterChef. Mary Luz fékk íslenskan ríkisborgararétt á síðasta ári. Susana og Johanna, móðir og systir, Mary Luz, komu hingað til lands fyrir tveimur árum ásamt dóttur Jóhönnu og sóttu um hæli sem flóttamenn. Útlendingastofnun synjaði nýverið mæðgunum um dvalarleyfi og að óbreyttu verður þeim vísað úr landi innan tíðar. Mæðgurnar hafa kært úrskurðin og telja líf sitt í hættu í Kólumbíu. Útlendingastofnun féllst ekki á þau rök. Málið er nú komið inn á borð Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra. Hanna Birna veitti Mary Luz tvívegis viðurkenningu árin 2009 og tíu þá í embætti borgarstjóra. Mary hvetur ráðherra til að bjarga fjölskyldu sinni.Breyta þarf lögum Mary Luz óttast afdrif fjölskyldu sinnar verði hún send úr landi. Forstjóri Útlendingastofnunar vildi ekki tjá sig efnislega um mál kólumbísku fjölskyldunnar. Of langan tíma hafi hins vegar tekið að komast að niðurstöðu í málinu. Susana og Johanna hafa beðið úrskurðar í tvö ár. „Aðstæður í málaflokknum hafa verið mjög erfiðar undanfarin ár. Það eru margir sem eru að bíða. Því miður þá hefur þetta tekið þetta langan tím,“ segir Kristín Víglundsdóttir, forstjóri Útlendingaeftirlitsins. Kristín telur nauðsynlegt að fara í heildarendurskoðun á lögum um útlendinga á Íslandi. „Við erum að byggja á norskum lögum frá árinu 2002. Það er búið að breyta þeim lögum ytra og útvíkka fjölskyldusameiningaráhrifin. Það er ekki til staðar í okkar lögum.“Fréttina úr kvöldfréttatíma Stöðvar 2 má sjá eftir tæpar fimmtán mínútur í myndbandinu að ofan.
Mest lesið Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Sjá meira