Spennt fyrir 2015 Elín Albertsdóttir skrifar 31. desember 2014 11:00 Sigga Kling segir að fólk þurfi að finna hamingjuna og jákvæðnina innra með sér. Mynd/Vilhelm
Sigríður Kling er litríkur persónuleiki sem sjaldan liggur á skoðunum sínum. Hún horfir til stjarnanna og segist hafa gott næmi fyrir því sem fram undan er. Sigga er bjartsýn á komandi ár og segir margt spennandi eiga eftir að gerast. Sigga var ekkert að hika þegar hún var spurð um árið 2015. „Ég hef velt nýju ári mikið fyrir mér. Margir muna kannski eftir heimsendaspá 21. desember 2012 en þá er talið að dagatali Inka eða Maya hafi lokið. Margar kenningar eru uppi um að á þessum degi fyrir tveimur árum hafi lokið ákveðnum myrkum kafla í sögu jarðarinnar. Frá þeim degi hafi opnast á bjartari tíma með minni spillingu og ljótleika en áður þekktist. Ég vil trúa þessu,“ segir Sigga. „Einnig tel ég mikilvægt að við trúum á það góða, það býr nefnilega inni í okkur. Ef við horfum á allt með neikvæðum augum þokast lítið í betri átt. Ég vil hvetja Íslendinga til að tileinka sér jákvæðara hugarfar á nýju ári. Miðað við að lýðræðið hafi fæðst 17. júní 1944 þá erum við að sigla inn í mjög gott ár. Við þurfum þó að hafa fyrir þessum góðu breytingum vegna þess að ekkert gerist ef við tökum ekki þátt í þeim,“ segir Sigga og bendir á að það sé gott fyrir alla að finna Pollýönnu í sér. „Það leynast góðar fréttir í fjölmiðlum en flestir sjá einungis þessar neikvæðu. Þar sem mikið streymi er af neikvæðum fréttum hvaðanæva úr heiminum er stundum gott að líta í eigin barm og skoða hvað maður hefur það í rauninni gott. Það eru svo margir miklu verr staddir,“ segir Sigga enn fremur. „Það þýðir ekkert að bíða eftir að hamingjan banki upp á með pitsunni. Við þurfum að finna hana inni í okkur og finna kraftinn í lífinu.“ Hún segist stundum vakna upp að morgni og sjá varla fram úr deginum. „Ég bið þá lífið að leysa þennan dag á góðan hátt og síðan treysti ég að það gerist. Jákvæð hugsun fleytir manni langt,“ segir Sigga og rifjar upp ástandið þegar Geir bað Guð að blessa Ísland. „Ég var stödd á Korputorgi og brast í grát yfir hörmungunum sem ættu eftir að dynja yfir okkur. Enginn matur yrði til í búðum, né lyf fyrir þá veiku. Auðvitað var þetta ömurleg stund en horfum til þess sem vel hefur verið gert síðan,“ segir hún. „Ég er spennt fyrir árinu 2015 og tel að margt muni koma fólki ánægjulega á óvart.“
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Fleiri fréttir Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Sjá meira