Innlent

Mokstur hafinn eftir óveðrið í gærkvöldi

Gissur Sigurðsson skrifar
Vísir/Stefán Karlsson
Þjóðvegir urðu ófærir í óveðrinu í gærkvöldi, sem sumstaðar stóð fram á nótt, en vegagerðarmenn eru víða byrjaðir í mokstri.

Þá geysaði sandbylur á Skeiðarársandi og Mýrdalssandi undir kvöldið og vindur fór sumstaðar upp í 45 metra á sekúndu.

Sárafáir bílar voru á ferðinni í nótt, samkvæmt teljurum Vegagerðarinnar og ekki er vitað um óhöpp eða slys. Björgunarsveitarmenn voru þó kallaðir út síðdegis í gær til að sækja fólk úr föstum bílum á Öxnadalsheiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×