Opnaði gallerí í miðju málverki Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 31. maí 2014 14:00 Marín hefur búið á Skagen frá árinu 1987 og unir hag sínum vel. Myndir/Torben Rahn
Það virðast allir hafa verið jafn hungraðir eftir að fá galleríið aftur eins og ég að byrja. Sem er gott,“ segir Marín Magnúsdóttir sem nýlega opnaði aftur listagallerí á Skagen, nyrst á Jótlandi, nú undir nafninu M. galleri. Hún segir lífið yndislegt á Skagen sem er næstum eins og eyja, ekkert nema strendur og sandur í kring og birtan einstaklega rómantísk. Hvernig skyldi hana hafa borið þangað? „Ég kom hingað með manni sem var í kvikmyndabransanum en okkar leiðir skildi fljótlega. Ég byrjaði að vinna í galleríi við höfnina með rússneskum listamönnum og upp úr því kynntist ég núverandi eiginmanni mínum, Knud Degn Karstensen, sem á og rekur hér skipasmíðastöð, Karstensen Skibsværft. Eftir það breyttist tilvera mín til batnaðar þannig að það var einhver meining með þessu öllu.“ Reyndar er húsið hennar Marínar aðeins utan við bæinn. „Ég bý úti í heiði með honum Knud mínum, hestunum, hundi og ketti,“ segir hún glaðlega. „Er með níu íslenska hesta og hef fengið mikið hrós fyrir þá. En ég datt af baki fyrir nokkrum árum og meiddi mig illa svo ég stunda ekki útreiðar lengur, þess vegna fór ég í staðinn að rækta hesta og gengur bara vel.“„Það virðast allir hafa verið jafn hungraðir eftir að fá galleríið aftur eins og ég að byrja,” segir Marín og tekur fram að Jón Ágúst Pálmason hafi hannað skiltið.Alþjóðleg sýning Marín er dóttir Magnúsar Thorvaldssonar blikksmiðs, sem er látinn fyrir nokkrum árum, og Önnu Gestsdóttur ljósmóður, sem Marín lýsir sem hörkuduglegri konu. Marín á þrjú börn með fyrri manni sínum, Ólafi Schram, þau Magnús Orra, Ellert Kristófer og Önnu Marín. Eiginmaður hennar, Knud Karstensen, á einnig þrjú börn. „Öll börnin okkar eru vel gift og hamingjusöm, strákarnir mínir búa á Íslandi og Anna Marín í Árósum,“ lýsir Marín og segir þau Knud Degn eiga fimmtán barnabörn og hún eitt langömmubarn. „Þetta er stór fjölskylda,“ segir hún ánægjuleg. Nú er allur gróður útsprunginn á Skagen, enda komið sumar. Marín segir staðinn laða að sér ferðamenn í stórum stíl, um milljón manns keyri þar í gegn á ári. Nyrsti tanginn, Grenen, þykir einstakur þar sem öldurnar út af honum mætast og teygja sig upp með tilþrifum. „Á sumrin er hér fullt af ferðamönnum en svo er rólegt á veturna, þannig að Skagen er eins og tveir ólíkir bæir eftir árstíðunum. Hér er náttúran sterk, fólkið gott og sem Íslendingi finnst mér ég vera á besta stað í Danmörku.“ En þótt Marín sé ánægð með Skagen þá finnst henni rokið þar stundum fullmikið. „Vestanvindurinn er stífur hér. Hann getur orðið svo hvass að ég sitji uppi með lauflaus tré á miðju sumri.“ Um hásumarið er opið sex daga vikunnar.En eru Íslendingar tíðir gestir á Skagen? „Ég verð ekki mikið vör við þá, fyrir utan fjölskyldu og vini sem koma í heimsókn. Stundum hitti ég landa sem hafa verið við nám í Árósum eða Álaborg og alltaf verið á leiðinni hingað en ekki látið verða af því. En Norræna stoppar í Hirsthals og þaðan er bara rúmlega hálftíma keyrsla hingað svo það ætti ekki að vera mikið mál fyrir fólk að kíkja.“ Listamenn frá Rússlandi, Hollandi, Danmörku og Íslandi eru með verk núna í m gallerii, að sögn Marínar. Svo verður ný sýning sett upp í lok júní og sú þriðja í lok júlí. Þrjár til fjórar sýningar eru fyrirhugaðar á ári og um hásumarið er opið sex daga vikunnar.Listaverkin njóta sín vel í m gallerii. Listamenn víða að úr heiminum sýna þar verk sín.Skagen eftirlæti málara Marín segir Skagen eftirsóttan af listamönnum og mörg gullaldarmálverk hafa orðið til þar. Því má segja að hún búi í miðju málverki. Í bænum segir Marín líka frægt listasafn, Skagen Museum, sem hafi sterkt aðdráttarafl. Um tíma kveðst hún hafa rekið gallerí undir nafninu Galleri Katedralen. „En fyrir um fimm árum var bankakrísan alveg að fara með mig. Það var líka brotist inn í galleríið og framið rán þannig að ég missti helminginn af sumarsýningunni það árið. Þá lokaði ég og fór bara að sinna betur ræktun íslenskra hesta,“ lýsir hún. „Nú ákvað ég að byrja aftur með listsýningarnar og gengur alveg glimrandi vel.“„Ég bý úti í heiði með honum Knud mínum, hestunum, hundi og ketti,“ segir Marín glaðlega.
Mest lesið Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Lífið Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Lífið Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Menning Áhorfendur djúpt snortnir á forsýningu Stóru stundarinnar Lífið Glamúr og glæsileiki í fimmtugsafmæli Kristínar Ólafs Lífið The Wire og Sopranos-leikari látinn Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Áttu sturlaða stund á Times Square Lífið Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum Lífið Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Lífið Fleiri fréttir Áttu sturlaða stund á Times Square The Wire og Sopranos-leikari látinn Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Katrín Tanja og Brooks eiga von á barni Frábær þjóðbúningamessa í Fljótshlíð Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Pedro Pascal fékk sér að borða á Kaffi Vest Hátt í þrjú þúsund manns sóttu „þjóðfund“ EVE-spilara Áhorfendur djúpt snortnir á forsýningu Stóru stundarinnar Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ „Svo byrjaði ég að kyssa stráka og varð allt í einu algjör uppreisnarseggur“ Krakkatían: Nintendo, tunglið og prinsessur Milljón manns í Rio til að sjá ókeypis Lady Gaga tónleika Býður í hláturstund við gömlu þvottalaugarnar Sýningin gott fyrir- og eftirpartý Ingvar E. valinn besti leikarinn í Belgíu Forstjórabaninn fær söngleik á fjalirnar „Ye mátti þola versnandi andlega heilsu vegna gjörða þinna“ Fréttatía vikunnar: Rafmagnsleysi, njósnir og SFS Ætlaði aldrei að enda í herskóla í Bandaríkjunum Með höfuðið rétt skrúfað á og gleyma aldrei hjálminum „Ég er búin að fæða þrjú börn en þetta er versta sem ég hef upplifað“ Þakka aðdáendum fyrir að hafa fjármagnað nýja húsið Íslenski Eurovision-hópurinn lagður af stað Mætti í eigið afmæli í lokaðri líkkistu Verðmiðinn hækkar á höll Antons Skúli og Gríma fengu sér hund Menningarlegt heimili með stórbrotnu útsýni Sjá meira